fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 20:30

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við heyrum þetta aftur og aftur: Drekktu mikið vatn. Passaðu upp á vökvajafnvægið. Þetta er auðvitað ekki slæmt ráð, líkaminn þarf vökva til að geta starfað á sem bestan hátt.

Jessica Vensel Rundo, svefnsérfræðilæknir, ráðleggur fólki að taka því rólega hvað varðar vatnsdrykkju þegar líður að háttatíma.

„Við ráðleggjum fólki almennt ekki að drekka mikið vatn skömmu fyrir háttatímann en lítill sopi er í góðu lagi,“ sagði hún að sögn Ujszo.

Hún ráðleggur fólki að hætta að drekka vatn um tveimur klukkustundum áður en farið er í háttinn. Með því fái líkaminn tækifæri til að losa sig við umframvökva og þar með minnka líkurnar á að fólk vakni um miðja nótt til að pissa.

Ef þú ert þurr í munninum eða þarft að taka lyf, þá skaltu bara fá þér lítinn sopa, helst ekki meira en það.

Það er auðvitað mikilvægt að vökvajafnvægi líkamans sé í lagi en góður svefn skiptir einnig miklu máli.

Þú lifir það eflaust af að vakna einu sinni til að fara á klósettið en ef klósettferðirnar verða margar yfir nóttina, þá getur það haft neikvæð áhrif. Rundo sagði að truflanir á svefninum geti til langs tíma valdið því að fólk er komið í mínus hvað varðar svefn og það sé ekki bara spurning um þreytt augu. Svefnskortur hafi til dæmis áhrif á minnið, ónæmiskerfið, blóðþrýstinginn, blóðfituna og líkamsþyngdina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ungur glímukappi tekinn af lífi

Ungur glímukappi tekinn af lífi
Pressan
Í gær

Hittler mætir Zielinski – „Það eina sem fólk hefur áhuga á eru nöfnin okkar“

Hittler mætir Zielinski – „Það eina sem fólk hefur áhuga á eru nöfnin okkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvíta húsið skráir lénið Aliens.gov

Hvíta húsið skráir lénið Aliens.gov
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telur að drápið í gær gæti aukið óstöðugleika í Íran og gert átökin hættulegri

Telur að drápið í gær gæti aukið óstöðugleika í Íran og gert átökin hættulegri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Greindist með ólæknandi krabbamein, ferðaðist svo 5.800 kílómetra og myrti fyrrverandi tengdaföður sinn

Greindist með ólæknandi krabbamein, ferðaðist svo 5.800 kílómetra og myrti fyrrverandi tengdaföður sinn