fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Stakk sig til bana þegar hann reyndi að losa frosnar steikur í sundur

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 11:30

Steikin var vel frosin þegar hann hófst handa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það má segja að kvöldmaturinn hafi orðið hinum 57 ára Barry Griffiths að bana. Hann var að reyna að losa tvær steikur í sundur með hníf þegar óhapp varð og hann stakk sig til bana.

The Telegraph skýrir frá þessu og segir að þegar lögreglan fann Barry látinn í íbúð hans, hafi aðkoman litið út eins og um morð hafi verið að ræða. Hann var með djúpt stungusár á maganum og það var blóð úti um allt eldhúsið.

En ítarleg vettvangsrannsókn leiddi í ljós að Barry hafði ekki verið banað. Þarna höfðu bara Barry, stór eldhúshnífur og frosnar steikur komið við sögu.

Rannsóknin leiddi í ljós að Barry hafði lagt allan þunga sinn á hnífinn til að skilja steikurnar í sundur. En yfirborð þeirra var frosið og sleipt og rann hnífurinn til og lenti af miklu afli í maga hans.

Barry bjó einn. Hann hafði áður fengið heilablóðfall og átti því erfitt með að hreyfa sig. Hann gat því ekki kallað eftir aðstoð og blæddi út á eldhúsgólfinu á meðan steikurnar þiðnuðu við hlið hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“