fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Orðrómarnir færast í aukana – Ætla Rússar að láta til skara skríða í Eistlandi?

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 12:00

Þessi mynd skelfir marga. Skjáskot/Telegram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérfræðingar hafa tekið eftir svolitlu á samfélagsmiðlum sem minnir á svolítið sem Rússar gerðu 2014. Telja sumir að þetta geti verið einhverskonar fyrirboði um að þeir hyggi á landvinninga hjá nágrönnum sínum.

Hefur þú heyrt um eistneska bæinn Narva? En hvað sem því líður, þá getur þú verið viss um að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur heyrt um hann. Svo virðist sem bærinn geti verið hluti af óhugnanlegri rússneskri áætlun.

Á myndinni fyrir neðan sést maður með svarta lambhúshettu fyrir framan fána. Fánann kannast eflaust ekki margir við því þetta er ekki opinber fáni. Þrjár láréttar rendur prýða hann, efst er svört, græn í miðjunni og hvít neðst.

Þessi mynd skelfir marga. Skjáskot/Telegram

 

 

 

 

 

 

 

Fáninn, sem grímuklæddi maðurinn stendur fyrir framan, er orðin táknmynd vaxandi ótta í mörgum ríkjum sem eiga landamæri að Rússlandi. Ótta við að Pútín og Rússland hafi í hyggju að láta til skara skríða í norðausturhluta Eistlands, við bæinn Narva.

Narva, sem er við rússnesku landamærin, hefur árum saman verið í umræðunni vegna ótta margra við að Rússar muni láta til skara skríða í bænum. Lítil á skilur Eistland og Rússland að þarna og því stutt að bregða sér yfir til nágrannanna.

Orðrómarnir og getgáturnar, um hvað gæti verið í vændum í Narva, hafa færst mjög í aukana að undanförnu. Á samfélagsmiðlum er fjöldi prófíla sem hafa mánuðum saman hvatt til stofnunar sjálfstæðs ríkis „Lýðveldisins Narva“ til að vernda rússneska minnihlutann í Eistlandi.

Þessi mynd hefur einnig verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Telegram

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árum saman hafa vestrænir embættismenn bent á að Rússar beini sjónum sínum að mörgum svæðum á yfirráðasvæði NATÓ, þar á meðal Eystrasaltsríkjunum, Finnlandi og Póllandi.

B.T. ræddi við Claus Mathiesen, lektor við danska varnarmálaskólann, og sagði hann að aukin umfjöllun á samfélagsmiðlum um þetta að undanförnu veki áhyggjur.

„Ég get ekki séð að Rússar séu að undirbúa árás á Eystrasaltsríkin núna. Þeir eiga fullt í fangi í Úkraínu þar sem Úkraínumenn hafa byr í seglin núna. Afstaðan hefur alltaf verið að árás á Eystrasaltsríkin sé óraunhæf því þau séu NATÓ-svæði. En eins og ég sé hlutina, þá hefur staða Rússa, varðandi hugsanlega árás á Eystrasaltsríkin, batnað mikið,“ sagði hann.

Hann benti á að Bandaríkin og stór hluti Evrópuríkja „fylgi ekki sama leikskipulaginu“ hvað varðar stríðið í Úkraínu. Þá eigi Bandaríkin í stríði í Íran sem krefjist mikils og því sé fælingarmáttur NATÓ á Rússa ekki eins mikill og áður.

En hvort þetta hafi orðið til þess að Rússar séu að íhuga þetta meira en áður er ekki vitað en hins vegar er vitað að á síðustu vikum og mánuðum hefur borið miklu meira á áróðrinum, eins og fyrrgreindum manni með lambhúshettuna, varðandi stofnun „Lýðveldisins Narva“.

Á Telegram eru margir prófílar sem hvetja til þess að norðausturhluti Eistlands lýsi yfir sjálfstæði og fylgja þessu oft myndir með hernaðarlegum undirtónum, til dæmis grímuklæddir og vopnaðir menn, skriðdrekar með fyrrgreindum Narva-fána og svo framvegis.

Saul Goodman úr Better Call Saul er einnig notaður í áróðrinum. Væntanlega ekki með hans samþykki. Skjáskot/Telegram

 

 

 

 

 

Mathiesen benti á að þessi áróður minni á það sem gerðist í Úkraínu fyrir 12 árum þegar Luhansk og Donesk sögðu skilið við Úkraínu og urðu að „lýðveldum“ með þeim fyrirslætti að þetta væri gert til að vernda rússneskumælandi íbúa héraðanna.

„Líkindin með hugsanlegu lýðveldi í Narva í Eistlandi hræða mig svolítið. Deilur eru skapaðar til að vernda rússneskumælandi íbúa,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“