fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Flugfélag ætlar að vísa farþegum frá borði ef þeir nota ekki heyrnartól

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 07:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður ferðast flugleiðis þarf að fylgja mörgum reglum og leiðbeiningum. Bandaríska flugfélagið United Airlines kynnti nýlega viðauka við þær reglur sem gilda um borð í vélum félagsins.

Samkvæmt viðaukanum mega áhafnarmeðlimir nú vísa farþegum, sem leika tónlist, spila tölvuleiki eða myndbönd, eða eitthvað með hljóði frá borði ef þeir nota ekki heyrnartól.

CBS News skýrir frá þessu og segir að auk þess að heimila að farþegum verði vísað frá borði, þá geti þeir einnig lent á lista félagsins yfir þá sem ekki fá að ferðast með því.

Þetta kunna að þykja ansi strangar reglur og afleiðingarnar af því að nota ekki heyrnartól geta orðið dýrkeyptar.

Ef farþegar gleyma að taka heyrnartól með sér, mun United bjóða þeim að fá ókeypis sett.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dularfullt hvarf ungs manns í Barcelona – Hvað gerðist?

Dularfullt hvarf ungs manns í Barcelona – Hvað gerðist?
Pressan
Í gær

Lýsti sér sem fórnarlambi eftir að hafa keypt „ónýtt“ höfðingjasetur heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna

Lýsti sér sem fórnarlambi eftir að hafa keypt „ónýtt“ höfðingjasetur heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þolandi nýnasistanjósnara fær afsökunarbeiðni og bætur

Þolandi nýnasistanjósnara fær afsökunarbeiðni og bætur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fékk 18 ára dóm eftir að 200 lík fundust í niðurníddu húsnæði

Fékk 18 ára dóm eftir að 200 lík fundust í niðurníddu húsnæði