fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Pressan

Þess vegna velja sumar konur sér eldri maka

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sambönd, þar sem karlinn er töluvert eldri en konan, vekja oft mikla athygli. Ekki síst ef aldursmunurinn er meiri en 10 ár eða jafnvel 20 ár.

Fólk á oft erfitt með að sitja á sér hvað þetta varðar og dæmir fólk óhikað ef konan á eldri maka, skiptir þá engu að þetta er nokkuð algengt. En snýst þetta um ást eða öryggi? Um aðdáun eða er konan bara háð manninum?

Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að raunveruleikinn er oft flóknari en þetta. Þetta snýst ekki bara um steríótýpur og félagslegar forsendur. Í ljós kom að sambönd af þessu tagi eru miklu ótvíræðari en fólk heldur og að oft er það eldri makinn sem fær mest út úr sambandinu.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar bandarísku sálfræðinganna Brian Collisson og Luciana Ponce De Leon eru sambönd, þar sem aldursmunurinn er mikill, oft talin skrýtin eða ósanngjörn í samanburði við sambönd jafnaldra.

Algeng hugmynd er að yngri aðilinn, oftast kona, sækist eftir fjárhagslegum eða félagslegum ávinningi með þessu en að eldri makinn, oftast karl, njóti góðs af útliti, orku eða æskuljóma makans.

En rannsóknin leiddi í ljós að oftast er það eldri makinn sem fær meira út úr sambandinu. Metro skýrir frá þessu.

Fram kemur að konur, sem velja sér eldri maka, geri það oft á grunni blöndu líffræðilegra, sálrænna og félagslegra ástæðna. Rannsóknin sýndi að konur laðast oftar að eldri mönnum vegna lífsreynslu þeirra, tilfinningalegs þroska þeirra og fjárhagslegrar stöðu þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Myndir af Andrew Mountbatten-Windsor, ungu barni og „bobbingabolta“ vekja óhug – Krúnan sögð í fordæmalausri krísu

Myndir af Andrew Mountbatten-Windsor, ungu barni og „bobbingabolta“ vekja óhug – Krúnan sögð í fordæmalausri krísu
Pressan
Í gær

Harmleikur á Tenerife: Maður myrti son sinn og var síðan skotinn af lögreglu

Harmleikur á Tenerife: Maður myrti son sinn og var síðan skotinn af lögreglu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Andrés Mountbatten-Windsor handtekinn og færður í fangaklefa

Andrés Mountbatten-Windsor handtekinn og færður í fangaklefa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mörg þúsund flækingshundar verði drepnir í aðdraganda HM

Óttast að mörg þúsund flækingshundar verði drepnir í aðdraganda HM