fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Pressan

Óttast að mörg þúsund flækingshundar verði drepnir í aðdraganda HM

Pressan
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 06:30

Flækingshundur á vappi í borginni Meknes í Marokkó. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dýraverndunarsamtök og aðgerðahópar saka yfirvöld í Marokkó um skipulagða útrýmingu á flækingshundum í tengslum við undirbúning landsins fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2030.

Átakanlegar myndir frá dýraverndunarsamtökum hafa vakið töluverða athygli undanfarnar vikur. Tilkynnt var árið 2023 að Marokkó yrði einn af gestgjöfum mótsins ásamt Spáni og Portúgal.

Samtök sem berjast fyrir réttindum dýra segja að frá þeim tíma hafi umfangsmiklar aðgerðir gegn flækingshundum færst í aukana í borgum landsins. Markmiðið sé að gera ferðamannastaði og miðborgir „hreinni og öruggari“ í augum erlendra gesta, fjölmiðla og stuðningsmanna.

Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að allt að þrjár milljónir flækingshunda lifi á götum Marokkó. Samkvæmt gögnum sem dýraverndunarsamtök hafa birt eru yfirvöld sögð beita harkalegum aðferðum, þar á meðal eitrunum og skotvopnum áður en dýrin eru grafin í fjöldagrafreitum.

Í nýlegri skýrslu var borginni Marrakech, sem á að hýsa leiki á mótinu, lýst sem eins konar „drápsmiðstöð“ þar sem hundar væru fluttir í sendibílum og aflífaðir í iðnaðarhúsnæði. Þá kemur fram í skýrslunni að í öðrum borgum hafi hundar verið sveltir og svo aflífaðir.

Alþjóðlegt bandalag dýraverndunarsamtaka (IAWPC) segir Marokkó hafa áður gripið til svipaðra aðgerða í aðdraganda stórra alþjóðlegra viðburða. Samtökin hafa lagt fram gögn til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem finna má ljósmyndir og skjöl sem eiga að styðja ásakanirnar.

FIFA hefur í yfirlýsingum vísað til þess að marokkósk stjórnvöld hafi í umsóknarferlinu lagt áherslu á skuldbindingu sína gagnvart dýravelferð, meðal annars með uppbyggingu dýralæknastöðva og úrræðum fyrir flækingsdýr. Sambandið segist nú vinna með marokkóskum yfirvöldum og alþjóðlegum sérfræðingum til að tryggja að slíkar skuldbindingar verði virtar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk og fleiri brjálaðir út af skoðanagrein um barnagirnd sem birtist fyrir 12 árum

Elon Musk og fleiri brjálaðir út af skoðanagrein um barnagirnd sem birtist fyrir 12 árum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dagleg banananeysla getur haft áhrif á blóðþrýstinginn

Dagleg banananeysla getur haft áhrif á blóðþrýstinginn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svaf ekkert í átta daga og lýsir áhrifunum – „Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir“

Svaf ekkert í átta daga og lýsir áhrifunum – „Ég heyrði og sá hluti sem voru ekki raunverulegir“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna
Pressan
Fyrir 5 dögum

Læknir segir tilefni til að hafa áhyggjur ef þú heyrir hjartsláttinn þinn

Læknir segir tilefni til að hafa áhyggjur ef þú heyrir hjartsláttinn þinn