fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Helgaði líf sitt Grænlandsjökli en hvarf svo í iður hans

Pressan
Laugardaginn 6. september 2025 18:00

Konrad „Koni“ Steffen var einn af fremstu vísindamönnum heims í loftslagsmálum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konrad  Steffen var einn af fremstu vísindamönnum heims á sviði loftslagsmála. Hann helgaði líf sitt rannsóknum á Grænlandsjökli en árið 2020 hvarf hann á jöklinum og hefur ekki fundist síðan. Business Insider tók saman ítarlega umfjöllun um ævi og síðustu daga svissneska vísindamannsins sem vakti fyrstur athygli á því hvernig bráðnun Grænlandsjökuls ýtir undir hækkandi sjávarmál á heimsvísu.

Steffen, sem var 68 ára þegar hann hvarf, hafði starfað á jöklinum í áratugi og stofnaði þar rannsóknarstöðina Swiss Camp. Með útsjónarsömum aðferðum tókst honum að sýna fram á að ísinn væri að hopa og bráðna hraðar en áður hafði verið talið. Hann varð þannig einn áhrifamesti boðberi loftslagsvísinda og átti í nánum samskiptum við stjórnmálamenn á borð við Nancy Pelosi og Al Gore.

Hvarfið á jöklinum

Dagana fyrir hvarfið hafði orðið ljóst að jökullinn var orðinn stórhættulegur. Fjölmargar djúpar jökulsprungur höfðu myndast í kringum áðurnefndar búðir, sem staðsettar voru um 80 kílómetrum frá bænum Ilulissat á vesturströnd Grænlands. Þann 8. ágúst 2020 fór Steffen út til að sækja gögn úr veðurstöð en síðan hefur ekkert til hans spurst.

Umfangsmikil leit með þyrlum og björgunarsveitum bar engan árangur. Þrátt fyrir að engin viti með vissu hvað hafi gerst þá er helsta kenningin sú að Steffen hafi fallið í eina af sprungunum sem voru á þessum slóðum. Vísindamaðurinn sem elskaði Grænlandsjökul hvarf því í iður hans.

Arfleifð sem lifir

Fimm árum síðar er hans enn sárt saknað af fjölskyldu, nemendum og samstarfsmönnum. Sonur hans, Simon, sagði í viðtali við Business Insider að það skipti kannski ekki máli hvað nákvæmlega gerðist: „Hann hvarf vegna þess að jökullinn sjálfur hefur breyst algjörlega.“

Al Gore sagði við miðilinn að Steffen hefði verið „sendiherra aðgerða“ í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.  „Við verðum að umbreyta þeirri örvæntingu sem loftslagskreppan kveikir innra með okkur í raunverulega aðgerðir,“ sagði Gore.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana