Kolsýrt vatn er yfirleitt framleitt í verksmiðjum en það er einnig hægt að finna slíkt vatn í náttúrulegum uppsprettum.
Þýski miðillinn Chip fjallaði um muninn á vatni og kolsýrðu vatni og bendir á að þegar talað er um neikvæð áhrif þess að drekka kolsýrt vatn, sé þrennt oft nefnt til sögunnar: Að það geti skaðað glerunginn, að kolsýran geti gert líkamann súran og að hún geti valdið brjóstsviða.
Fjöldi tannlækna hefur vísað því á bug að kolsýran geti skemmt glerunginn. Segja þeir að koltvísýringurinn vatninu sé CO2, sem við öndum einnig frá okkur, og skemmi því ekki tennurnar.
Hvað varðar það að líkaminn geti orðið súr við að drekka kolsýrt vatn, hefur verið bent á að koltvísýringur sé efni sem líkaminn þekki vel. Þegar þess er neytt í viðeigandi magni, brotni efni niður í maganum og því sé engin hætta á því að líkaminn súrni ef neyslunni er stillt í hóf.
Það getur komið fyrir að kolsýrt vatn valdi brjóstsviða því CO2-bobblurnar gera pirrað magann og vélindað. Rannsókn frá 2010 sýndi fram á að engar sannanir séu fyrir að kolsýrt vatn valdi bakflæði.
Rannsóknir hafa sýnt að kolsýrt vatn getur komið sér vel fyrir meltinguna og komið í veg fyrir hægðatregðu. Það er þó rétt að taka þessum niðurstöðum með fyrirvara því fáir þátttakendur voru í þessum rannsóknum og þær náðu aðeins yfir skamman tíma.