fbpx
Laugardagur 02.ágúst 2025
Pressan

Þurfti að fara í flókna hjartaaðgerð eftir að hafa borðað poppkorn – „Dauðinn knúði dyra“

Pressan
Laugardaginn 2. ágúst 2025 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adam Martin, 41 árs slökkviliðsmaður í Coverack í Cornwall á Englandi, hefur svarið þess eið að borða aldrei aftur poppkorn. Ástæðan er að hann var nærri dáinneftir að hafa reynt að fjarlægja popp sem sat fast á milli tannanna. Það endaði með að hann fékk alvarlega blóðeitrun sem orsakaði sýkingu í hjartanum. Læknar segja að ef hann hefði beðið þremur dögum lengur með að fara til læknis hefði hann dáið.

Cornwall Live skýrir frá þessu.

Allt hófst þetta í september þegar Adam deildi poppkornspoka með eiginkonu sinni, Helen, á meðan þau horfðu á sjónvarpið. Þá festist eitt popp á milli tanna innst í munninum. Þetta var við að gera hann brjálaðan í þrjá daga og hann reyndi að fjarlægja poppið með tannstöngli og nál úr málmi. Þetta orsakaði blæðingar í tannholdinu og því komust bakteríur úr munninum inn í blóðrásina.

Viku síðar byrjaði hann að svitna mikið, fékk höfuðverk og hjartsláttartruflanir en þetta eru nokkur einkenni hjartaþelsbólgu. Hann fékk einnig hjartanið.

„Læknar sögðu mér að ég hefði dáið ef ég hefði beðið með að fara til læknis í þrjá daga til viðbótar.“

Sagði Adam sem þurfti að gangast undir flókna hjartaaðgerð til að hægt væri að bjarga lífi hans.

„Flestir deyja þegar sýkingatalan nær 350. Hún var 340 hjá mér þegar ég var lagður inn. Ef ég hefði farið strax til tannlæknis hefði ég losnað við þennan hrylling. Þetta er það versta sem ég hef upplifað.“

Sagði þessi þriggja barna faðir.

„Dauðinn knúði dyra. Ég var mjög heppinn. En eitt er öruggt. Ég ætla aldrei aftur að borða poppkorn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mánaðarlangri leit að höfði Julian lokið – Raunveruleikastjarna ákærð fyrir hrottalegt morð

Mánaðarlangri leit að höfði Julian lokið – Raunveruleikastjarna ákærð fyrir hrottalegt morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Baðvigtin kom upp um framhjáhald eiginmannsins – „Þetta er rannsókn á sérfræðistigi“

Baðvigtin kom upp um framhjáhald eiginmannsins – „Þetta er rannsókn á sérfræðistigi“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skurðlæknir kallaður „Hugrakkasti Bretinn“er í slæmum málum

Skurðlæknir kallaður „Hugrakkasti Bretinn“er í slæmum málum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leggja háar sektir á ferðamenn í ferðamannaparadísinni – „Þetta er á ábyrgð allra“

Leggja háar sektir á ferðamenn í ferðamannaparadísinni – „Þetta er á ábyrgð allra“