fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Þessi vinsælu matvæli geta valdið snemmbúnum einkennum Parkinsons

Pressan
Sunnudaginn 15. júní 2025 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú ert manngerðin sem drekkur oft gosdrykki, borðar tilbúna rétti eða færð þér nasl, þá er kannski ástæða til að stoppa við og hugsa sinn gang.

Ástæðan er að niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að neysla á slíkum matvælum hafi ekki aðeins áhrif á þyngdina og orkustigið, heldur einnig á heilann. The New York Post skýrir frá þessu og vísar í niðurstöður nýrrar stórrar langtímarannsóknar sem tæplega 43.000 manns, sem ekki voru með Parkinsons, tóku þátt í.

Rannsóknin leiddi í ljós að mikil neysla ofurunninna matvæla eykur mjög líkurnar á að fólk þrói með sér snemmbúin einkenni Parkinsons. Meðalaldur þátttakendanna var 48 ár og var fylgst með þeim í 26 ár. Fóru þeir reglulega í heilsufarsrannsókn, skrá var haldin um mataræði þeirra og þeir svöruðu spurningalistum.

Rannsóknin sýnir að fólk sem neytir 11 eða fleiri skammta af ofurunnum matvælum á viku, það eru til dæmis gosdrykkir, nasl, sætir drykkir, kökur, pylsur, sósur og álegg, er 2,5 sinnum líklegra til að þróa með sér minnst þrjú snemmbúin merki Parkinsons. Þetta eru meðal annars svefntruflanir, þunglyndi, þreyta, missir lyktarskyns skert geta til að greina liti rétt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því
Pressan
Í gær

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur enduðu með ósköpum – „Þú og fjölskylda þín hafið tvær vikur til að flytja“

Nágrannaerjur enduðu með ósköpum – „Þú og fjölskylda þín hafið tvær vikur til að flytja“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna

Afi hennar og amma tóku hana að sér og ólu upp – Svona launaði hún þeim góðmennskuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?