fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Pressan

Svona sefur þú betur þegar það er heitt

Pressan
Laugardaginn 14. júní 2025 20:30

Það getur verið mjög óþægilegt að svitna í svefni. Mynd/OpenArtAI

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Átt þú erfitt með svefn þegar það er heitt í veðri? Ef svo er þá ekki úr vegi að halda lestrinum áfram því hér fyrir neðan nefnum við nokkur góð ráð, sem Kevin Morgan, prófessor og fyrrum forstjóri Clinical Sleep Research Unit við Loughborough University, og Lisa Artis, hjá Sleep Council, deildu um hvað á að gera og hvað ekki til að fá góðan nætursvefn þegar heitt er í veðri.

Enginn blundur – Slepptu því að fá þér blund. Hitinn getur gert mann þreyttan yfir daginn því líkaminn notar meiri orku við hitastjórnun sína. Ef nætursvefninn þinn er ekki eins góður og þú vildir, reyndu þá að standast freistinguna um að leggja þig að degi til. Þegar það er heitt í veðri, getur syfja verið verðmæt og því er best að geyma að nota hana fram að háttatíma.

Rútínur – Haltu fast í rútínurnar þínar. Hitinn gæti valdið því að þú freistist til að breyta rútínunum þínum, en reyndu að standast þessa freistingu. Það getur truflað svefninn. Reyndu að halda þig við venjulega háttatímann þinn og hinar venjulega kvöldrútínur.

Ekki gleyma grundvallaratriðunum – Gerðu allt sem í þínu valdi stendur til að halda svefnherberginu eins svölu og hægt er. Það getur gert gæfumuninn að draga gardínurnar fyrir. Að loka gluggunum á sólarhlið hússins, kemur í veg fyrir að heitt loft komist inn. Opnaðu síðan alla glugga fyrir háttatíma til að ná upp gegnumtrekki.

Þunn lök – Notaðu þunn lök og eins lítið af sængurfatnaði og hægt er en hafðu eitthvað við höndina sem þú getur breitt yfir þig ef þörf krefur. Þunn bómullarlök geta dregið svita í sig. Óháð því hversu heitt er í svefnherberginu, mun líkamshitinn lækka yfir nóttina og þess vegna vöknum við oft og finnst okkur vera kalt.

Kældu sokkana – Þú getur sett sokkana þína í ísskápinn áður en þú ferð í þá. Ef þú kælir fæturna, þá lækkar heildarhitastig líkamans.

Drekktu nóg – Gættu þess að drekka nóg vatn yfir daginn en forðastu að drekka mikið rétt fyrir háttatímann. Þú munt líklega vakna þyrst(ur) en þú vilt það frekar en að þurfa að fara á klósettið um miðja nótt.

Slepptu gosdrykkjum – Gosdrykkir innihalda oft koffín en það örvar miðtaugakerfið og gerir okkur meira vakandi. Reyndu líka að takmarka áfengisneyslu. Margir detta í þá gildru að drekka meira áfengi þegar heitt er í veðri. Alkóhól getur gert að verkum að fólk á auðveldara með að sofna en það gerir einnig yfirleitt að verkum að maður vaknar snemma og svefngæðin eru lítil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Lífveran frá helvíti – Stundar kynlíf á andliti þínu og kúkar á þig á meðan þú sefur

Lífveran frá helvíti – Stundar kynlíf á andliti þínu og kúkar á þig á meðan þú sefur
Pressan
Í gær

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994

Tekinn af lífi fyrir hryllilegan glæp árið 1994
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns