En sem betur fer er til einfalt ráð til að lengja líftíma lauks töluvert og það sem þarf til er líklega til heima hjá þér.
Margir geyma lauk í skál eða poka á eldhúsborðinu en það getur stytt líftíma hans töluvert.
Laukur hefur það best í þurru og svölu umhverfi með góðu loftflæði.
Ef loftrakinn er of mikill, þá byrjar laukurinn að mygla.
Það er hins vegar hægt að lengja líftíma lauksins með því að setja eldhúspappír eða klósettpappír í körfuna hjá honum. Pappírinn dregur rakann í sig og kemur þar með í veg fyrir ótímabæra rotnun lauksins.
Það þarf bara að muna að skipta um pappír þegar hann er orðinn rakur. Gotowanie. onet.pl skýrir frá þessu.