fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Pressan

Íbúar Tehran forviða og skelfingu lostnir eftir árásir Ísrael í nótt – „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“

Pressan
Föstudaginn 13. júní 2025 10:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil spenna er á milli Ísraels og Írans eftir að Ísraelsher hóf umfangsmikla loftárás á Íran í nótt þar sem ráðist var meðal annars á kjarnorkuinnviði og hernaðarleg skotmörk.

Aðgerð Ísraelshers, Operation Rising Lion, er sögð hafa beinst að yfir 100 skotmörkum. Hossein Salami, yfirmaður íranska byltingarvarðarins, lést í árásunum sem og tveir vísindamenn sem unnið hafa að kjarnorkuáætlun landsins. Þá er starfsmannastjóri íranska hersins sagður hafa látist. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði að markmiðið með árásunum væri að stöðva kjarnorkuáætlun Írans. Ef Ísrael myndi ekki bregðast við núna gætu Íranir framleitt kjarnorkuvopn innan mjög skamms tíma.

Árásin í nótt kom almennum Írönum töluvert á óvart, en CNN ræddi við fólk í Tehran sem vita ekki sitt rjúkandi ráð. Óvissan er mikil og íbúar vita ekki hvernig næstu dagar verða.

„Ég vaknaði við að allt húsið hristist. Ég var mjög hræddur og vissi ekki hvað var að gerast,“ sagði einn. Annar sagðist óttast frekari árásir. „Ég óttast stigmögnun átakanna og hvað það mun þýða fyrir okkur hér í Tehran. Við höfum engar upplýsingar fengið og orðið á götunni er að þetta muni gerast núna á hverri nóttu. Eigum við áfram að dvelja á heimilum okkar?“

Annar sem CNN ræddi við, en íbúar kusu allir að tjá sig í skjóli nafnleyndar þar sem þeir óttuðust um öryggi sitt, sagðist sleginn yfir því að Ísrael hafi beint árásum sínum gegn íbúasvæðum. „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“

Táningur lýsti því svo að fólk hafi verið öskrandi á götum úti í nótt og að byggingar hafi nötrað. „Ég vissi ekki hvað var að gerast og þetta var mjög skelfilegt.“

Sumir efast um getu leiðtoga Íran til að verja íbúa, sérstaklega þegar fréttir bárust af því að háttsettir embættismenn íranska hersins hafi látið lífið í árásunum. „Þegar þessir leiðtogar hersins geta ekki passað sína eigin menn, hvernig eiga þeir að vernda þjóðina gegn árásum Ísrael?“

Nánar má lesa um stöðuna í fréttavakt CNN. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag

Hann var nýfæddur þegar ókunnug kona rændi honum árið 1980 – Svona gæti hann litið út í dag
Pressan
Fyrir 2 dögum

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?

Henni var rænt og haldið fanginni í trékassa í 7 ár – Hvað varð um „Stúlkuna í kassanum“?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir börn sín ekki þekkja heimsþekktan heimilisvin

Segir börn sín ekki þekkja heimsþekktan heimilisvin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neituðu að horfa á upptökur af voðaverkum Hamas – Greta Thunberg í flugvél á leið frá Ísrael

Neituðu að horfa á upptökur af voðaverkum Hamas – Greta Thunberg í flugvél á leið frá Ísrael