fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Pressan

Arkitektinn hefndi sín grimmilega eftir að hann missti fjölskyldu sína í flugslysi

Pressan
Föstudaginn 13. júní 2025 22:00

Vitaly Kaloyev með börnum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fallegum sumardegi þann 1. júlí árið 2002 kollvarpaðist veröld rússneska arkitektsins Vitaly Kaloyev. Þennan dag missti hann eiginkonu sína, Svetlönu, soninn Konstantin, 10 ára, og dótturina Diönu, 4 ára, í hörmulegu flugslysi yfir Þýskalandi.

Tvær flugvélar rákust saman þegar þær voru á flugi skammt frá bænum Uberlingen við landamæri Sviss; vöruflutningavél frá DHL og farþegaflugvél frá rússneska flugfélaginu Bashkirian Airlines. Afleiðingarnar urðu þær að 71 lést.

Misvísandi upplýsingar

Vél Bashkirian Airlines var á leið frá Moskvu til Barcelona á Spáni þegar slysið varð og beið Vitaly eftir fjölskyldu sinni á flugvellinum. Fjölskyldan hafði ætlað að koma sér fyrir á Spáni og var Vitaly að vinna við byggingu húss undir fjölskylduna í Barcelona.

Þýsk rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að misvísandi upplýsingar frá flugumferðarstjóra í Sviss, sem var í samskiptum við vélarnar, hefðu valdið slysinu. Þá hefði öryggisbúnaður um borð í vélunum, sem áttu að láta flugmennina vita af yfirvofandi árekstri, ekki virkað sem skyldi.

Var einn á vaktinni

Á vakt í flugturninum í Sviss þennan örlagaríka dag var danskur flugumferðarstjóri, Peter Nielsen að nafni. Peter var sýknaður í málinu; réttarrannsókn sem fram fór leiddi ekkert athugavert við störf hans í ljós og sitt sýndist hverjum um það. Þar sem Peter var eini flugumferðarstjórinn á vakt þennan daginn var áfallið mikið fyrir hann. Eftir að rannsókn lauk hætti hann störfum sem flugumferðarstjóri og vonaðist til þess að geta eytt æviárunum í faðmi fjölskyldu sinnar í bænum Kloten í Sviss þar sem hann hafði búið í tæp tuttugu ár.

Þjakaður af reiði og sorg

Vitaly bar þá von í brjósti að einhver yrði dreginn til ábyrgðar vegna dauða eiginkonu sinnar og barna. Sú von varð að engu þegar ákveðið var að draga Nielsen ekki til ábyrgðar í málinu. Þjakaður af reiði og sorg ákvað Vitaly að leita Nielsen uppi og það tókst honum í febrúar árið 2004 með aðstoð rússnesks einkaspæjara. Vitaly mætti heim til Nielsens í Kloten í Sviss og lagði til hans með hníf. Þann 24. febrúar árið 2004 hafði Vitaly tekist að hefna, ef svo má segja, fyrir dauða eiginkonu sinnar og barna.

„Mitt annað heimili undanfarin tvö ár hefur verið í kirkjugarðinum þar sem þau hvíla.“

Sleppt eftir tvö ár í fangelsi

Vitaly var að sjálfsögðu handtekinn fyrir morðið á Nielsen. Fyrir dómi sagði hann að líf hans hefði endað daginn sem hann missti fjölskyldu sína. „Mitt annað heimili undanfarin tvö ár hefur verið í kirkjugarðinum þar sem þau hvíla,“ sagði hann. Hann neitaði að hafa heimsótt Nielsen með það í huga að myrða hann. Hann hafi ætlað að ræða við hann um dauða barna sinna en Nielsen hefði tekið fálega í það. Kaloyev gat þó ekki útskýrt hvers vegna hann tók með sér hníf í þetta rólega hverfi.

Þann 26. október 2005 var Kaloyev sakfelldur og dæmdur í átta ára fangelsi fyrir morðið en Hæstiréttur mildaði dóminn í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi. Honum var veitt reynslulausn í árslok 2007 eftir að hafa afplánað 2/3 hluta refsingarinnar. Kaloyev sneri heim til Rússlands í kjölfarið, til heimaborgar sinnar í Norður-Ossetíu, Vladikavkaz. Við komuna til heimaborgar sinnar fékk hann höfðinglegar móttökur og var hampað sem hetju. Kaloyev býr enn í Rússlandi en settist í helgan stein árið 2016. Hann gekk í hjónaband rúmum áratug eftir harmleikinn þegar hann kvæntist konu að nafni Irina Dzarasova. Þann 25. desember 2018 eignuðust þau tvíbura, dreng og stúlku.

Árið 2017 var frumsýnd kvikmyndin Aftermath með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki. Myndin er byggð á þessari óvenjulegu sögu og fer Schwarzenegger með hlutverk Kaloyevs í myndinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir

Vinsælasti meinti morðinginn í dag deilir 27 hlutum sem hann er þakklátur fyrir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gefur lítið fyrir gagnrýni á kynferðislega framsetningu persónu hennar – „Hlutgerðu mig“

Gefur lítið fyrir gagnrýni á kynferðislega framsetningu persónu hennar – „Hlutgerðu mig“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn

Fyrrverandi starfsmaður DOGE opnar sig um reynslu sína og hvers vegna hann var rekinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

R. Kelly vill afplána 30 ára dóm í stofufangelsi út af meintu feigðarflani stjórnsýslunnar

R. Kelly vill afplána 30 ára dóm í stofufangelsi út af meintu feigðarflani stjórnsýslunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elon Musk þurfti að leiðrétta gervigreindina sína – „„Nei, þetta er falsað, andskotinn hafi það“

Elon Musk þurfti að leiðrétta gervigreindina sína – „„Nei, þetta er falsað, andskotinn hafi það“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sá hluta af heila sonar síns á jörðinni eftir hræðilegt slys – Læknar sögðu fjölskyldunni að kveðja

Sá hluta af heila sonar síns á jörðinni eftir hræðilegt slys – Læknar sögðu fjölskyldunni að kveðja
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bólugrafni lögreglumaðurinn átti sér hryllilegt leyndarmál

Bólugrafni lögreglumaðurinn átti sér hryllilegt leyndarmál
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar segja mikilvægt að borða kvöldmatinn á rétta tímapunktinum til að lengja lífið

Sérfræðingar segja mikilvægt að borða kvöldmatinn á rétta tímapunktinum til að lengja lífið