fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Pressan

Harmleikurinn í Austurríki: Myrti nágranna sinn og lagði áherslu á að einhver hugsaði um köttinn hans

Pressan
Fimmtudaginn 12. júní 2025 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem myrti tíu manns í gagnfræðaskóla í borginni Graz í Austurríki á þriðjudagsmorgun hét Artur A. samkvæmt austurrískum fjölmiðlum. Hann féll svo fyrir eigin hendi eftir voðaverkið. Meðal þeirra sem hann myrti var nágranni hans.

Artur var nemandi í skólanum um hríð en útskrifaðist ekki. Alls létust níu ungmenni á aldrinum 14 til 17 ára í árásinni en auk þess lést einn kennari. Þá særðust ellefu í árásinni, þar af nokkrir alvarlega.

Ung stúlka sem lést í árásinni bjó skammt frá Arturi í úthverfi Graz en hún hefur ekki verið nafngreind enn sem komið er.

Í gær var greint frá því að Artur hefði sent móður sinni myndbandsskilaboð þar sem hann lýsti því sem hann ætlaði að gera. Móðir hans hafði samband við lögreglu um leið og hún sá myndbandið en þá voru 24 mínútur liðnar síðan hún sendi það og Artur búinn að framkvæma ætlunarverk sitt.

Í öðrum skilaboðum sem hann skildi eftir sig er hann sagður hafa lýst því að hafa orðið fyrir einelti þegar hann var sjálfur nemandi í skólanum. Bar hann kala til skólans vegna þess hvernig tekið var á því. Kronen Zeitung segir að í umræddum skilaboðum hafi hann einnig lagt áherslu á að einhver myndi hugsa um köttinn hans.

Lögregla framkvæmdi húsleit á heimili hans á þriðjudag og fann þar rörasprengju sem grunur leikur á að hann hafi ætlað sér að nota. Sprengjan var þó ekki virk og virðist hann hafa hætt við að nota hana.

Artur hefði orðið 22 ára seinna í þessum mánuði og greindu austurrískir fjölmiðlar frá því í gær að hann hefði ekki verið virkur á neinum samfélagsmiðlum. Hann hefði verið mikið einn síðastliðin misseri og aðeins í sambandi við einn vin sem hafði ekki hugmynd um hvað hann ætlaði að gera.

Artur var búsettur í Kalsdorf, átta þúsund íbúa úthverfi Graz, síðastliðin fimm ár og tók hann ekki þátt í neinu félagsstarfi eða íþróttastarfi svo vitað sér. „Hann virðist hafa verið einangraður ungur maður og fáir virðast hafa tekið eftir honum. Það þekkti hann í raun enginn. Þetta er það sem við erum farin að sjá oftar – þöglir og félagslega einangraðir ungir menn,“ segir Manfred Komericky, bæjarstjóri Kalsdorf við austurríska fjölmiðla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa ljósi á það sem fannst í leitinni að Madeleine McCann í síðustu viku

Varpa ljósi á það sem fannst í leitinni að Madeleine McCann í síðustu viku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ása lýsir því hvernig Rex bað hennar og hvað hann gerði á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2009

Ása lýsir því hvernig Rex bað hennar og hvað hann gerði á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2009