Kevin Verville Jr. var aðeins 17 daga gamall þegar honum var rænt frá móður sinni í San Diego-sýslu þann 1. júlí árið 1980. Kona knúði þá dyra á heimili foreldra hans og þóttist hún vera frá deild innan félagsþjónustunnar sem aðstoðar efnalitla foreldra.
Umrætt kona var hvít, sagðist heita Sheila og af lýsingum að dæma var hún rúmlega tvítug. Hún bað ungu móðurina um að koma með sér og taka Kevin með sér þar sem hún þurfti að skrá þau til þátttöku í fyrrnefndu úrræði.
Unga móðirin steig upp í bílinn og tók Kevin með sér en eftir stutta stund stöðvaði Sheila fyrir utan hús. Bað hún móður Kevins um að hoppa út og banka á dyrnar þar sem þar væri önnur ung móðir sem hún þurfti að sækja. Um leið og hún steig út úr bílnum gaf Sheila í með Kevin í aftursætinu og hafa þau ekki sést síðan.
FBI og National Center for Missing & Exploited Children (NCMEC) hafa ekki gleymt þessu sorglega máli og hafa stofnanirnar nú gefið út mynd sem á að gefa raunsæja mynd af því hvernig Kevin gæti litið út í dag.
Þá vekja stofnanirnar athygli á því hvernig Sheila leit út, en hún var sögð ljóshærð með gleraugu og með lítið húðflúr á annarri höndinni á svæðinu á milli vísifingurs og þumals. Hafa stofnanirnar hvatt fólk til að hafa augun opin og láta vita ef einhver kannast við fyrrnefndar lýsingar.
„Það er líklegt að Kevin hafi ekki hugmynd um það sem kom fyrir hann eða að líffræðilegir foreldrar hans séu enn að leita að honum. Hann gæti verið hvar sem er, þannig að við biðjum ykkur öll um að taka þátt í þessari leit,“ segir Angeline Hartmann, fjölmiðlafulltrúi NCMEC.
Í frétt NBC San Diego er rætt við Angelicu Ramsey, sem fæddist fimm árum eftir að bróður hennar var rænt. Hún segir að foreldrar þeirra séu enn á lífi en við lélega heilsu. „Það væri sorglegt ef þau myndu falla frá án þess að finna hann,“ segir Ramsey sem vonast til þess að DNA-tæknin komi einn daginn til með að leiða fjölskylduna aftur saman.