Ástæðan fyrir þessu er að sögn að Svetlana var þreytt á „slæmri hegðun“ dóttur sinnar.
The Mirror skýrir frá þessu og segir að Svetlana, sem býr í Chelyabins héraðinu, hafi boðið kunningja sínum greiðslu fyrir að drekka dótturinni í nærliggjandi á. Svetlana, sem er 46 ára, vissi ekki að dóttirin heyrði til hennar þegar hún ræddi við kunningjann. Heyrði dóttirin að móðir hennar sagði að ástæðan fyrir þessari beiðni hennar væri að hún væri þreytt á slæmri hegðun hennar og sífelldum deilum við hana.
Eftir að hafa samið um morðið, sendi Svetlana, sem á þrjú önnur börn, dótturina út með kunningjanum sem heitir Andrey og er 36 ára.
Stúlkan var mjög hrædd þegar hún gekk með Andrey en hann sagði henni frá þessu öllu saman og lofaði að vernda hana. Hann fór með stúlkuna heim til sín og faldi hana þar og hafði síðan samband við lögregluna.
Svetlana á allt að 15 ára fangelsi yfir höfði sér.
Stúlkunni hefur verið komið fyrir í fóstri ásamt tveimur systkinum sínum, sem eru 6 og 17 ára. Fjórða barn Svetlönu er 18 ára.