fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Pressan

Telja að morðinginn líti svona út í dag

Pressan
Fimmtudaginn 29. maí 2025 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í desember árið 1973 fékk morðinginn Lester Eubanks leyfi fangelsismálayfirvalda í Ohio í Bandaríkjunum til að sinna jólagjafainnkaupum.

Þetta þótti nokkuð sérstakt enda hafði Lester þessi verið dæmdur til dauða fyrir tilraun til nauðgunar og morð á 14 ára stúlku, Mary Ellen Deener, árið 1965. Dómnum var aftur á móti breytt í lífstíðarfangelsi árið 1972, aðeins þremur dögum áður en til stóð að taka hann af lífi.

Fangaverðir fluttu Lester og nokkra aðra fanga í verslunarmiðstöðina og skiluðu þeir sér allir til baka, nema Lester sem lét sig hverfa. Rúm 50 ár eru síðan og enn þann dag í dag er Lester ófundinn.

US Marshals hefur nú endurvakið umræðu um málið og birt nýja mynd af Lester eins og hann gæti litið út í dag, 81 árs að aldri. US Marshals, elsta alríkislöggæslustofnun Bandaríkjanna, tók við málinu árið 2016 og hefur stofnunin fengið fjölda ábendinga um hvar Lester er niðurkominn án þess þó að það hafi leitt til handtöku hans.

Áður en að morðinu kom hafði Lester í tvígang verið handtekinn vegna kynferðisbrota. Hann hitti Mary í þvottahúsi í bænum Mansfield og réðst á hana þegar hún yfirgaf það. Dró hann hana á bak við hús, reyndi að nauðga henni en hún streittist á móti. Dró Lester þá upp byssu og skaut hana tvisvar í kviðinn. Hann kom aftur á vettvang um 20 mínútum síðar og sá þá að Mary var á lífi. Tók hann þá upp múrstein og barði hana þar til hún lést.

Lögregla hefur í gegnum árin fengið ýmsar vísbendingar og jafnvel staðfestingar um hvar Lester hefur haldið sig. Hann flutti til Los Angeles árið 1975 og tók þá upp nafnið Victor Young. Kona sem hann bjó með hafði samband við lögreglu eftir að upp úr sambandi þeirra slitnaði. Þegar lögregla freistaði þess að handtaka hann var hann á bak og burt.

Það spurðist svo til hans í Alabama þar sem hann starfaði við ræstingar á heimili fyrir vandræðaunglinga. Lögregla ræddi við föður hans, Mose Eubanks, sem búsettur var í Ohio og viðurkenndi hann að þeir töluðust reglulega við í gegnum síma. Hann neitaði þó að gefa upp dvalarstað sonar síns. Hann er svo sagður hafa verið viðstaddur útfarir hjá ættingjum sínum árin 2003, 2010 og 2012 en virðist ávallt hafa verið skrefinu á undan lögreglu.

Fjallað hefur verið um mál hans víða, til dæmis í Netflix-þáttunum Unsolved Mysteries.

Svona gæti hann litið út í dag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl
Pressan
Í gær

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sérfræðingur í líkamstjáningu segir að Macron hafi verið reiður eftir að eiginkona hans ýtti honum

Sérfræðingur í líkamstjáningu segir að Macron hafi verið reiður eftir að eiginkona hans ýtti honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harvard sviptir starfsmann æviráðningu – Rannsakaði siðferðislega hegðun en var rekin fyrir ósiðferðislega hegðun

Harvard sviptir starfsmann æviráðningu – Rannsakaði siðferðislega hegðun en var rekin fyrir ósiðferðislega hegðun
Pressan
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur í vanda eftir að 70 manns fengu ónæmisviðbrögð af heimagerðri hárolíu hans

Áhrifavaldur í vanda eftir að 70 manns fengu ónæmisviðbrögð af heimagerðri hárolíu hans
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Flugvél full af enskum dýrum“ – Farþegi lýsir hryllingsflugi til sólarstrandar

„Flugvél full af enskum dýrum“ – Farþegi lýsir hryllingsflugi til sólarstrandar