fbpx
Fimmtudagur 29.maí 2025
Pressan

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón

Pressan
Miðvikudaginn 28. maí 2025 17:30

Hann hefur aldrei keypt hrísgrjón.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Taku Eto, landbúnaðarráðherra Japan, neyddist nýlega til að segja af sér eftir að hafa látið „mjög óviðeigandi ummæla falla á sama tíma og almenningur þjáist vegna hækkandi hrísgrjónaverðs.

Ummæli hans fóru mjög illa í almenning sem glímir við síhækkandi matvælaverð. Það sem ráðherrann sagði var að hann hefði „aldrei þurft að kaupa hrísgrjón“ og væri það gjöfum stuðningsmanna að þakka.

The Independent skýrir frá þessu og segir að afsögnin auki þrýstinginn á Shigeru Ishiba, forsætisráðherra, sem hefur átt undir högg að sækja í vinsældakönnunum. Stuðningur við hann mælist nú aðeins 27,4% og er það rakið til veikburða viðbragða ríkisstjórnar hans við hækkandi matarverði.

Þegar Eto ræddi við fréttamenn um málið sagðist hann hafa afhent Ishiba afsagnarbréf sitt því „ég lét mjög svo óviðeigandi ummæli falla á sama tíma og almenningur þjáist vegna hækkandi hrísgrjónaverðs“.

Verðhækkanir á hrísgrjónum má rekja til lélegrar uppskeru og mikillar eftirspurnar frá ferðamönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svíar hvattir til að drepa ekki mýflugur

Svíar hvattir til að drepa ekki mýflugur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum lögreglustjóri flúði úr fangelsi – Dæmdur fyrir morð og nauðgun

Fyrrum lögreglustjóri flúði úr fangelsi – Dæmdur fyrir morð og nauðgun
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að sofa eigi með gluggana lokaða

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að sofa eigi með gluggana lokaða
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Grænmeti er eitur“ segir prófessor í heilbrigðisfræði

„Grænmeti er eitur“ segir prófessor í heilbrigðisfræði