fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Pressan

Gervihnattarmynd varpar ljósi á stóra framkvæmd í Norður-Kóreu

Pressan
Fimmtudaginn 17. apríl 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérfræðingar eru á einu máli um að gervihnattarmynd sem tekin var yfir Norður-Kóreu fyrir skemmstu sýni að smíði þeirra á „stærsta og fullkomnasta herskipi“ flotans er langt á veg komin.

Myndirnar voru teknar af Maxar Technologies og Planet Labs þann 6. apríl síðastliðinn og sýna ógnarstórt skip við Nampo-skipasmíðastöðina á vesturströnd Norður-Kóreu.

CNN hefur eftir sérfræðingum að myndin sýni að um herskip sé að ræða sem er líklega um tvöfalt stærra en þau stærstu sem fyrir eru í flotanum. Af myndunum að dæma verði skipið meðal annars búið palli til að skjóta eldflaugum af.

CNN hefur eftir Joseph Bermudez hjá bandarísku hugveitunni CSIS að skipið sé að líkindum um 140 metrar á lengd.

Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa á undanförnum misserum reynt að nútímavæða her sinn og er nýja herskipið einn af lykilþáttunum í því að sögn sérfræðinga.

Í frétt CNN er haft eftir Kim Duk-ki, fyrrverandi aðmírál í suðurkóreska hernum, að hann telji að Rússar hafi aðstoðað Norður-Kóreumenn við smíði skipsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk þungan dóm eftir ólýsanlegan harmleik í barnaafmæli

Fékk þungan dóm eftir ólýsanlegan harmleik í barnaafmæli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn