fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Taívanar taka hart á fyrirtækjum sem hjálpa landsmönnum að sækja um kínversk skilríki

Pressan
Miðvikudaginn 19. febrúar 2025 06:30

Nýju herskipi fagnað á Taívan. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega 4.000 Taívanar hafa að sögn sótt um kínversk skilríki í hafnarborginni Xiamen. Taívönsk stjórnvöld bregðast nú við þessu og ætla að taka hart á fyrirtækjum sem aðstoða Taívana við að sækja um kínversk skilríki og einnig verður tekið á þeim sem hafa orðið sér úti um slík skilríki.

The Independent segir að ráðuneyti meginlandsmála, það er ráðuneytið sem fer með málefni er varða Kína, ætli nú að grípa til aðgerða gegn þeim Taívönum sem eru með skilríki bæði frá Taívan og Kína.

Liu Shyh-fang, innanríkisráðherra, sagði að nú þegar hafi yfirvöld vitneskju um nokkur fyrirtæki sem hjálpi Taívönum við að sækja um kínversk skilríki.

Málið komst í hámæli eftir að tveir taívanskir áhrifavaldar birtu myndbönd þar sem sést hvernig kommúnistastjórnin í Pekin er að lokka Taívana til að sækja um kínversk skilríki. Þetta gerir kommúnistastjórnin til að reyna að hafa áhrif á almenningsálitið á Taívan sér í hag.

Kommúnistastjórnin lítur á Taívan sem hluta af Kína og hefur ekki útilokað að hervaldi verði beitt til að ná völdum í eyríkinu. Taívanar vilja hins vegar flestir ekki hafa neitt með Kína að gera og kjósa frekar að búa í lýðræðisríkinu sínu.

Að minnsta kosti 4.000 Taívanar hafa sótt um kínversk skilríki í strandborginni Xiamen í Fujian héraði. Um helmingur þeirra gerði þetta án þess að skila inn taívönsku skilríkjunum sínum eða ferðaheimildum sem þeir þurfa til að geta ferðast til Kína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana