fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Óhugnanlegt myndband frá lestarstöð

Pressan
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franskir fjölmiðlar hafa birt óhugnanlegt myndband frá lestarstöð í frönsku borginni Lyon sem sýnir tilefnislausa og lífshættulega líkamsárás sem átti sér stað á sunnudagskvöld.

Eins og myndbandið ber með sér mættust tveir menn við stiga á lestarstöðinni og rákust lauslega saman. Sá sem var á leiðinni upp brást ókvæða við, dró upp hníf og elti þann sem var á leiðinni niður og stakk hann aftan í hálsinn.

Sá sem fyrir árásinni varð var augljóslega undrandi og ringlaður en hélt för sinni áfram. Maðurinn fékk aðhlynningu skömmu síðar og var fluttur á slysadeild, en í frönskum fjölmiðlum kemur fram að hending hafi ráðið því að hann dó ekki í árásinni. Maðurinn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

Myndband af árásinni var birt í frönskum fjölmiðlum og hafði lögregla hendur í hári árásarmannsins í gærkvöldi eftir að aðstandandi mannsins bar kennsl á hann.

Hann hefur áður komið við sögu lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana