fbpx
Þriðjudagur 29.júlí 2025
Pressan

Hundurinn sleikti hana – Það varð henni að bana

Pressan
Þriðjudaginn 29. júlí 2025 03:11

June Baxter. Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var röð næstum því ómögulegra atburða sem varð til þess að hin breska June Baxter lést eftir að hundur sleikti fótlegg hennar.

Baxter var 83 ára þegar hún lést. Það var hundur barnabarns hennar sem sleikti fótlegg hennar en opið sár var á fótleggnum. Við þetta bárust bakteríur úr hundinum í Baxter og þær urðu henni að lokum að bana. Telegraph skýrir frá þessu.

Það er eiginlega ótrúlegt að einhver geti verið svona óheppinn en samt sem áður var Baxter svona óheppin. Hún datt af klósettinu sínu í lok júní og skarst á fæti. Hún hringdi því í barnabarn sitt, Caitlan Allin, sem sá aðallega um umönnun hennar.

Allin fór heim til ömmu sinnar og hafði hundinn sinn með. Hundurinn sleikti sárið á fótleggnum og daginn eftir hringdi Baxter aftur í Allin og sagðist líða illa. Hún var flutt á sjúkrahús 1. júlí.

Sýnatökur leiddu í ljós að Baxter var með bakteríuna „pasteurella multocida“ en það er baktería sem er algeng í munni hunda.

Heilsu Baxter hrakaði stöðugt og þrátt fyrir þá umönnun og meðferð, sem hún fékk, þá lést hún 7. júlí. Nýrun, lifrin og hjartað gáfu sig og því lést hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ríkasti maður Noregs setur húsið sitt í Lundúnum á sölu – „Bretland er farið til helvítis“

Ríkasti maður Noregs setur húsið sitt í Lundúnum á sölu – „Bretland er farið til helvítis“
Pressan
Í gær

Dróst inn í MRI-skanna og lést – Var með 9 kílóa keðju á sér

Dróst inn í MRI-skanna og lést – Var með 9 kílóa keðju á sér