Ástæðan er að niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að neysla á slíkum matvælum hafi ekki aðeins áhrif á þyngdina og orkustigið, heldur einnig á heilann. The New York Post skýrir frá þessu og vísar í niðurstöður nýrrar stórrar langtímarannsóknar sem tæplega 43.000 manns, sem ekki voru með Parkinsons, tóku þátt í.
Rannsóknin leiddi í ljós að mikil neysla ofurunninna matvæla eykur mjög líkurnar á að fólk þrói með sér snemmbúin einkenni Parkinsons. Meðalaldur þátttakendanna var 48 ár og var fylgst með þeim í 26 ár. Fóru þeir reglulega í heilsufarsrannsókn, skrá var haldin um mataræði þeirra og þeir svöruðu spurningalistum.
Rannsóknin sýnir að fólk sem neytir 11 eða fleiri skammta af ofurunnum matvælum á viku, það eru til dæmis gosdrykkir, nasl, sætir drykkir, kökur, pylsur, sósur og álegg, er 2,5 sinnum líklegra til að þróa með sér minnst þrjú snemmbúin merki Parkinsons. Þetta eru meðal annars svefntruflanir, þunglyndi, þreyta, missir lyktarskyns skert geta til að greina liti rétt.