Hollt mataræði getur einnig haft áhrif á hvernig hið daglega líf þitt er. Ef þú ert með of mikið kólesteról, þá getur það til dæmis haft hamlandi áhrif á þig í hinu daglega lífi. Það er því ekkert óeðlilegt við að fólk vilji lækka þá tölu ef hægt er.
Ef þú hefur sett þér það markmið að minnka magn kólesteróls í blóðinu og losna við fitu, þá er best að veðja á trefjaríkan mat og það allt frá morgunstundinni.
Á vefsíðunni SheFind er fjallað um málið og rætt var við næringarfræðingana Jesse Feder og Sheri Berger, sem segja að eftirtaldar fæðutegundir ættu að vera hluti af fyrstu máltíð dagsins ef fólk vill minnka magn kólesteróls.
Haframjöl
Chiafræ
Spínat
Lárpera
Hnetur
Banani
Ber (til dæmis bláber, hindber og jarðarber)
Þrátt fyrir að það geti haft mikil áhrif að byrja daginn með að borða réttu fæðuna, þá er það ekki alltaf nóg. Það eru einnig aðrir þættir sem geta haft áhrif á kólesterólið.
Það er til dæmis ekki nóg að borða hollan og næringarríkan mat á morgnana ef þú borðar síðan óhollan mat það sem eftir lifir dags eða jafnvel ekki neitt. Þetta snýst því að miklu leyti um að sætta sig við að maður þarf að breyta lífsstíl sínum hvað varðar mataræðið.