Ruangsak, sem er þekktur taílenskur tónlistarmaður, hefur sjálfur reynslu af því að lifa af skelfilegt flugslys en hann var um borð í vél Thai Airways þegar hún brotlenti skömmu fyrir lendingu á Surat Thani-flugvellinum í Taílandi þann 11. desember árið 1998.
Meirihluti farþega lést í slysinu, eða 101, en 45 komust lífs af.
Eins og Bretinn Viswash Kumar Ramesh, sem komst líf af úr slysinu í gær, sat Ruangsak í sæti 11A.
Hann vottaði aðstandendum þeirra sem létust samúð sína á samfélagsmiðlum í gær og segir að slys sem þessi hafi víðtæk áhrif á þá sem lifa þau af.
„Ég átti mjög erfitt með að fljúga í 10 ár eftir slysið. Ég átti erfitt með að anda, ég reyndi að tala ekki við neitt og ég horfði alltaf út um gluggann. Ef ég sá dimm ský nálgast þá leið mér hræðilega, eins og ég væri staddur í helvíti,“ segir hann.
Hann segist enn muna eftir hljóðunum og lyktinni sem blossaði upp eftir slysið. „Í mjög langan tíma þá hélt ég öllum þessum tilfinningum fyrir sjálfan mig,“ sagði hann.