„Ef það væri eitthvað sem mér liði illa með, þá myndi ég ekki gera það,“ segir leikkonan Ali Larter sem gefur lítið fyrir gagnrýni á kynferðislega framsetningu persónu hennar í sjónvarpsþáttunum The Landman.
Þættirnir eru úr smiðju Taylor Sheridan (Yellowstone, Tulsa King, Mayor of Kingstown). Í leikur hin 49 ára gamla Larter. Angelu, léttlynda og djarfa eiginkonu Tommy, sem leikinn er af Billy Bob Thornton. Þegar fyrsta þáttaröð var sýnd í fyrra voru bæði Larter og Michelle Randolph, sem leikur dóttur Angelu, báðar gagnrýndar, sem og Sheridan, fyrir hversu kynferðislegur söguþráðurinn var og fatnaðurinn þegar kom að leikkonunum tveimur.
Larter segir að henni líði vel í eigin skinni, óháð því hvað gagnrýnendur kunna að halda.
Í viðtali við The Hollywood Reporter sagði hún: „Enginn setur mig í stöðu sem mér líður ekki vel í.“
Sagðist hún geta treyst þeirri sýn sem Sheridan hefur fyrir söguna um olíu í Texas, sem og hvernig persóna hennar mun þróast í þáttunum.
Sagðist hún reyna að sleppa því að lesa gagnrýni á netinu um hlutverk sitt.
„Það er til góð umfjöllun og slæm umfjöllun. Það er krefjandi,“ sagði hún og segist hafa meiri áhyggjur af vinnunni.
„Þetta er barnið hans Taylor. Alltaf þegar ég slakaði á sló hann taktinn. Hann vill að Angela sé hávær og tilfinningaþrungin, eins og hvirfilbylur.“
Í stað þess að vera meðvituð um viðbrögðin við persónu sinni í Landman, segir Larter að sagna styrki hana sem einstakling.
„Ef það væri eitthvað sem mér liði illa með, þá myndi ég ekki gera það,“ sagði hún. „Það sem er óþægilegra er að fólk líður svo illa með kynhneigð sína.“
„Ég er líka bara svona: „Hlutgerðu mig. Gerðu það,’“ sagði hún. „Ég á tvö börn. Ég hef verið gift í 19 ár. Ég elska að leika þessa persónu.“
Randolph, sem leikur dóttur hennar á skjánum tekur í sama streng.
Leikkonan sem er 27 ára, sagði að það væri „áhugavert að fylgjast með viðbrögðum áhorfenda“ við persónu hennar því hún hefði verið svo lengi að leika Ainsley á þeim tímapunkti að gagnrýnin var „gamlar fréttir“.
„Ég held að það sé eitthvað sem ber að fagna að vera sáttur við kynhneigð sína. Ef það er það sem þú finnur fyrir sem manneskja og er í samræmi við hver þú ert, þá vertu þú sjálf/ur. Og það er það sem Ainsley er að gera,“ segir Randolph.
„Hún er 17 ára, svo ég held að þegar hún eldist muni hún setja fleiri mörk og skilja betur hvernig heimurinn virkar. Hvað hana varðar, þá er þetta eins og hún hefur verið alin upp og hún mun átta sig á því hvort hún telur það rétt eða rangt eða hvort hún vilji breyta því.
Ég er svo stolt af þáttunum sem við gerðum, og því leyfði ég mér bara ekki að hafa sjónarhorn á því hvað áhorfendurnir hugsuðu.“