fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Pressan

Sá ekki skilaboðin fyrr en 24 mínútum síðar – Þá var sonur hennar búinn að myrða 10 manns

Pressan
Miðvikudaginn 11. júní 2025 10:01

Lea, 15 ára, lést í árásinni í gær. Austurríska þjóðin er harmli slegin. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Austurríska þjóðin er í áfalli vegna hörmulegrar skotárásar í menntaskóla í borginni Graz í gær þar sem tíu nemendur og kennarar voru skotnir til bana. Byssumaðurinn, 21 árs fyrrverandi nemandi við skólann, féll svo fyrir eigin hendi eftir skotárásina.

Í fréttum austurrískra fjölmiðla kemur fram að rannsóknarlögreglumenn hefðu fundið eins konar kveðjumyndband sem byssumaðurinn, sem kallaður er Artur í austurrískum fjölmiðlum, sendi móður sinni rétt áður en hann hóf árásina.

Samkvæmt fréttamiðlinum Heute hafði móðir byssumannsins strax samband við lögreglu þegar hún sá skilaboðin frá syni sínum. Það var hins vegar of seint þar sem hún opnaði myndbandið ekki fyrr en 24 mínútum eftir að hún fékk það. Þá var sonur hennar búinn að ráðast inn í tvær skólastofur í skólanum þar sem hann skaut á fólk.

Franz Ruf, yfirmaður öryggismála hjá innanríkisráðuneyti landsins, staðfesti í samtali við austurríska ríkissjónvarpið að kveðjubréf hefði einnig fundist á heimili piltsins. „Hann kveður foreldra sína en það er ekki hægt að lesa neitt skýrt tilefni út úr bréfinu. Það er enn til rannsóknar,“ sagði hann.

Aðspurður hvort ungi maðurinn hefði valið fórnarlömb sín sérstaklega eða skotið þau af handahófi sagðist hann ekki vilja fullyrða neitt um það.

Fyrsta fórnarlambið hefur verið nafngreint í austurrísku pressunni og er það fimmtán ára stúlka af kósóvóskum uppruna, Lea. Aðstandendur hennar minntust hennar á samfélagsmiðlum í gær.

Pilturinn var vopnaður haglabyssu og skammbyssu og kom fram í gær að hann hefði átt þessi vopn löglega. Kennarar og nemendur voru meðal hinna látnu. Sex konur og þrír karlar voru úrskurðuð látin skömmu eftir árásina en tíunda fórnarlambið, kona, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gærkvöldi.

Ungi maðurinn er sagður hafa búið einn með móður sinni í útjaðri Graz og sagði nágranni mannsins í samtali við austurríska blaðið Profil að hann hafi ekki látið mikið á sér bera. „Hann var mjög lokaður, var alltaf með stór heyrnartól og bakpoka. Hann heilsaði aldrei en var aldrei óþægilegur eða neitt þannig,“ sagði nágranninn. Hann lýsir móður hans sem „indælri“ og „ljúfri konu“.

„Ég bið ekki bara fyrir fjölskyldum fórnarlambanna heldur líka fyrir móðurinni,“ sagði annar nágranni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Taskan stóð í bílskúrnum í 20 ár – Trúði ekki eigin eyrum þegar sérfræðingurinn tjáði sig

Taskan stóð í bílskúrnum í 20 ár – Trúði ekki eigin eyrum þegar sérfræðingurinn tjáði sig
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blandaðu þessu kryddi í kaffið – Getur komið í veg fyrir minnistap og bætt einbeitinguna

Blandaðu þessu kryddi í kaffið – Getur komið í veg fyrir minnistap og bætt einbeitinguna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfullt hljóð truflaði kennarana dag og nótt – Áttu ekki orð þegar þeir fundu upptök þess

Dularfullt hljóð truflaði kennarana dag og nótt – Áttu ekki orð þegar þeir fundu upptök þess
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svona sérð þú á örskotsstund hvort það sé kominn tími til að taka kartöflurnar upp

Svona sérð þú á örskotsstund hvort það sé kominn tími til að taka kartöflurnar upp