fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Pressan

Rússnesk móðir fékk leigumorðingja til að myrða 12 ára dóttur sína – Ástæðan er hrollvekjandi

Pressan
Föstudaginn 30. maí 2025 03:15

Heimili mæðgnanna. Mynd:IC

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússnesk móðir, sem er nefnd Svetlana í rússneskum fjölmiðlum, er í haldi lögreglunnar, grunuð um að hafa fengið leigumorðingja til að myrða 12 ára dóttur sína. Hún bauð kunningja sínum sem svarar til rúmlega 100.000 króna fyrir að drekkja dótturinni í á.

Ástæðan fyrir þessu er að sögn að Svetlana var þreytt á „slæmri hegðun“ dóttur sinnar.

The Mirror skýrir frá þessu og segir að Svetlana, sem býr í Chelyabins héraðinu, hafi boðið kunningja sínum greiðslu fyrir að drekka dótturinni í nærliggjandi á. Svetlana, sem er 46 ára, vissi ekki að dóttirin heyrði til hennar þegar hún ræddi við kunningjann. Heyrði dóttirin að móðir hennar sagði að ástæðan fyrir þessari beiðni hennar væri að hún væri þreytt á slæmri hegðun hennar og sífelldum deilum við hana.

Eftir að hafa samið um morðið, sendi Svetlana, sem á þrjú önnur börn, dótturina út með kunningjanum sem heitir Andrey og er 36 ára.

Stúlkan var mjög hrædd þegar hún gekk með Andrey en hann sagði henni frá þessu öllu saman og lofaði að vernda hana. Hann fór með stúlkuna heim til sín og faldi hana þar og hafði síðan samband við lögregluna.

Svetlana á allt að 15 ára fangelsi yfir höfði sér.

Stúlkunni hefur verið komið fyrir í fóstri ásamt tveimur systkinum sínum, sem eru 6 og 17 ára. Fjórða barn Svetlönu er 18 ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvíta húsið mun ekki vita sitt rjúkandi ráð eftir nýjasta hneyksli varnarmálaráðherrans

Hvíta húsið mun ekki vita sitt rjúkandi ráð eftir nýjasta hneyksli varnarmálaráðherrans
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skipstjórinn lést í miðri siglingu skemmtiferðaskips

Skipstjórinn lést í miðri siglingu skemmtiferðaskips
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fóstrinu haldið lifandi þó móðirin sé heiladauð – „Þetta er algjör pynting fyrir mig“

Fóstrinu haldið lifandi þó móðirin sé heiladauð – „Þetta er algjör pynting fyrir mig“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum lögreglustjóri flúði úr fangelsi – Dæmdur fyrir morð og nauðgun

Fyrrum lögreglustjóri flúði úr fangelsi – Dæmdur fyrir morð og nauðgun