fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Pressan

105 ára segir þetta vera lykilinn að langlífi

Pressan
Laugardaginn 7. desember 2024 15:30

Kathleen Hennings er 105 ára og drekkur Guinness.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir reyna að lengja líf sitt með því að borða ofurfæði og stunda þróaðar líkamsræktaræfingar. En hin 105 ára Kathleen Hennings hefur líklega fundið lykilinn að langlífinu.

Lausn hennar felst ekki í flóknum matarkúrum eða dýrum fæðubótarefnum. Kathleen, sem fæddist 1919 í Brixton á Bretlandi, hefur lifað góðu og ánægjulegu lífi. Hún hefur alltaf verið sjálfstæð og lífsglöð.

En lykillinn að langlífinu er að hennar sögn að hún hefur alltaf verið einhleyp og þess utan drekkur hún Guinness bjór.

Hún bjó árum saman í Lundúnum þar sem hún starfaði sem endurskoðandi. Í frítímanum dansaði hún mikið í Covent Garden og sótti óperur og ballett. Nú býr hún á dvalarheimili aldraðra þar sem vinir og starfsfólk héldu upp á afmælið hennar með því að skála í Guinness.

Hún sagði að mikilvægasti þátturinn í langlífi hennar sé að hún hafi ákveðið að vera einhleyp og hafi því ekki þurft að takast á við skyldur hjónabandsins. „Engar hjónabandsskyldur og kaldur Guinness, það er það eina sem þú þarft,“ sagði hún með glettnisglampa í augum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff
Pressan
Fyrir 4 dögum

Útlendingastofnun svarar fyrir gagnrýni á mál Oscars – „Hann á foreldra í heimalandi“

Útlendingastofnun svarar fyrir gagnrýni á mál Oscars – „Hann á foreldra í heimalandi“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum

Myndband virðist sýna uppnám á milli Macron og eiginkonu hans – Ýtti í andlitið á honum