Veðurfræðingar, sem fylgdust náið með Milton, hafa orðið fyrir barðinu á samsæriskenningum um að þeir stjórni veðrinu, þeim hefur verið úthúðað og jafnvel hótað lífláti.
Samsæriskenningar og ógnanir fóru á kreik þegar Helene fór í gegnum sex ríki og varð nokkur hundruð manns að bana. Í kjölfarið fylgdi síðan Milton sem fór yfir Flórída í síðustu viku.
The Guardian hefur eftir yfirmanni neyðaraðstoðarstofnunar Bandaríkjanna að Trump og stuðningsfólk hans hafi dælt út röngum upplýsingum um fellibyljina í svo miklu magni að það hafi í raun heft og jafnvel stöðvað hjálparstarfið.
Katie Nickolaou, veðurfræðingur í Michigan, sagði að hún og samstarfsfólk hennar hafi orðið mikið fyrir barðinu á samsæriskenningunum og hafi borist skilaboð þar sem því er haldið fram að til séu fellibyljir í sjötta styrkleikaflokki (það er ekki rétt), að veðurfræðingar eða ríkisstjórnin búi fellibyljina til og stjórni þeim (það er auðvitað ekki rétt) og að réttast sé að drepa vísindamenn og eyðileggja veðurratsjár.
„Ég hef aldrei upplifað að óveður skapi svo mikið af röngum upplýsingum, við höfum staðið í ströngu við að slökkva elda rangra upplýsinga út um allt,“ sagði hún.
„Fullt af fólki hefur sagt að ég búi fellibylji til og stjórni þeim, það er fólk sem telur að við stjórnum veðrinu. Ég hef þurft að benda á að fellibylur er jafn öflugur og 10.000 kjarnorkusprengjur og að við getum ekki einu sinni gert okkur vonir um að stjórna slíku. En þetta hefur færst meira yfir í ofbeldisfulla orðræðu, sérstaklega þegar fólk segir að réttast sé að drepa þá sem bjuggu Milton til,“ sagði hún einnig.