Barry kom inn á þetta á erindi á ráðstefnu í New York í vikunni og grínaðist hann með það að flugvélar félagsins hefðu ótrúlegan lækningamátt. Sama fólk og kæmi inn í vélina í hjólastólum gæti svo gengið út úr henni á áfangastað án nokkurra vandkvæða.
„Ef þú leggur bílnum þínum í stæði fyrir hreyfihamlaða kemur löggan og þú færð sekt. Það sama ætti að eiga við um fólk sem misnotar þessa þjónustu,“ sagði Barry og bætti við að þetta kæmi niður á þeim sem raunverulega þurfa á þjónustunni að halda.
Samkvæmt lögum frá árinu 1986 þurfa flugfélög að útvega hjólastóla fyrir hreyfihamlaða farþega en þessi sömu lög kveða einnig á um að hreyfihamlaðir njóti forgangs um borð. Þurfa þeir þar af leiðandi ekki að bíða í röðum sem getur tekið drykklanga stund.
Barry benti á að í einu flugi hafi hvorki fleiri né færri en 20 farþegar óskað eftir því að fá hjólastól áður en þeir fóru um borð. Aðeins þrír þeirra notuðu svo hjólastól þegar vélin lenti á áfangastað.
Talið er að þessa aukningu megi að hluta rekja til myndbands sem fór víða á TikTok árið 2022 þar sem sagt var frá ýmsum ráðum til að forðast langar raðir á flugvöllum. Eitt af þessum ráðum var að fá hjólastól til að létta sér lífið og forðast biðraðir.