Þetta snýst um Gilles d‘Ettore, sem var kjörinn bæjarstjóri í franska Miðjarðarhafsbænum Agde fyrir tveimur áratugum, þá aðeins 32 ára. Hann átti að baki ferill hjá frönsku leyniþjónustunni.
Almenn sátt ríkti um störf hans árum saman en síðan fór að halla undan fæti í vinsældunum. Rekja má þá þróun til þess þegar hann kynntist Sophia Martinez árið 2020. Meðal hinna 26.000 bæjarbúa er hún þekkt sem dávaldur og miðill.
Henni tókst að sannfæra bæjarstjórann, sem var þá orðinn 55 ára, um að hún væri í nánu sambandi við erkiengilinn Mikael og gæti með hans aðstoð komið bæjarstjóranum í samband við látinn föður hans, Raymond.
Mörgum sinnum á dag ræddi Gilles í síma við karlmannlega, djúpa og svolítið hása rödd sem kynnti sig sem „Papa“. Gilles taldi þetta vera föður sinn að tala að handan.
Eftir því sem segir í ítarlegri umfjöllun Le Monde um málið, þá ræddi Gilles 3.375 sinnum í síma við röddina árið 2023. Þetta gerir tæplega 10 sinnum á dag.
„Papa“ sannfærði Gilles um að ráða Sophia til starfa hjá bænum og var hún sett á launaskrá en framlag hennar til starfsemi bæjarins var aðeins að vera milliliður á milli Gilles og „Papa“.
Þetta var ekki ódýrt því þjónusta Sophia var ekki ódýr en Gilles kunni vel að meta hana og þjónustu hennar og kallaði hana „elskuna mína“.
Frændhygli
Sophia býr í einbýlishúsi við sjávarsíðuna. Hún á sex börn úr þremur hjónaböndum. Meðal viðskiptavina hennar eru þekktir bæjarbúar og fyrrum lögreglumenn. Þetta segir lögmaður Gilles, Jean-Marc Darrigade. Einn þessara viðskiptavina segir að þegar hann notfærði sér þjónustu hennar í fyrsta sinn hafi hann komist í samband við látna móður sína.
Í fjögur ár beitti Gilles völdum sínum og orku í að uppfylla óskir „Papa“. Sophia fékk nýjan sólpall við húsið sitt. Einkabílstjóri Gilles ók börnum hennar í skóla daglega en þau sóttu skóla utan bæjarins og tók aksturinn eina klukkustund hvora leið. Gilles lagði mikið á sig til að hjálpa henni við að fá útgáfusamning fyrir ævisögu hennar.
Þess utan útvegaði hann ættingjum og vinum hennar vel launuð störf hjá bæjarfélaginu.
Þegar Sophia giftist Cédric Martinez, sem svo ótrúlega vildi til að var nýtekinn við starfi bæjartæknifræðings Agde, í ágúst 2023 fór brúðkaupið fram í hinu glæsilega Chateu Sainte-Cecile og var leigan fyrir veisluhöldin „aðeins“ sem svarar til 1,2 milljóna íslenskra króna. Þetta þótti vel sloppið enda hafði Giles notað sambönd sín til að fá gott leiguverð. Hann beitti einnig fyrirtæki í bænum, sem áttu í miklum viðskiptum við bæjarfélagið, miklum þrýstingi um að greiða megnið af kostnaðinum við veitingarnar í veislunni en hann nam sem nemur um fjórum milljónum íslenskra króna.
Kaupsýslufólk blandaðist í málið
Ítrekað tókst Gilles að draga kaupsýslufólk inn í ólöglega gjörninga sína. Margt þeirra hefur nú verið kært fyrir spillingu og misnotkun á fé fyrirtækja þeirra. Meðal ástæðnanna fyrir þessum kærum er að fólkið fékk hluta af útgjöldum sínum til Sophia greiddan til baka með því að rukka bæjarfélagið um of háar upphæðir þegar fyrirtækin sinntu verkefnum fyrir það.
Þegar Gilles var handtekinn, fann lögreglan tvo lestarmiða, á fyrsta farrými, og ávísun á hótelgistingu í París fyrir Sophia og Cédric. Þetta var í mars á þessu ári. Í febrúar greiddi bæjarfélagið fyrir afmælisveislu Sophia á veitingastað við ströndina.
Það var Géraldine Sanchez, fyrrum eiginkona Gilles, sem lét lögregluna vita af málinu. Það gerði hún í október á síðasta ári eftir að hún hafði fengið margar símhringingar frá „konunni með röddina“.
Gilles og Sophia hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan í mars en þau eru grunuð um spillingu og fjárdrátt.
„Mér er brugðið“
Gilles vildi gjarnan þakka erkienglinum Mikael fyrir að hafa komist í samband við föður sinn. Tímaritið Marianne segir að hann hafi því pantað eftirlíkingu af styttu af Mikael og var hún afhjúpuð í kirkju bæjarins í apríl á síðasta ári.
Hún er silfurlituð, úr stáli og vegur 250 kíló. Hún er með sverð til að verja bæinn en það hefur erkiengillinn gert síðan á miðöldum. Gamla styttan af honum var brædd af þýska innrásarliðinu fyrir 80 árum og notuð í ný vopn.
Gilles var svo sannfærður um yfirskilvitlega hæfileika Sophia að hann áttaði sig ekki á sannleikanum fyrr en lögreglumenn sýndu honum myndband þar sem Sophia talaði með rödd „Papa“ eftir pöntun.
„Mér er brugðið,“ sagði Gilles við rannsóknardómarann og bætti við: „Ég hef verið blekktur.“
Sophia sagði rannsóknardómara að hún sjái eftir því sem hún gerði en hún hafi lent í vondri atburðarás sem hún komst ekki út úr.
Le Monde segir að hún sitji ekki auðum höndum í fangelsinu því hún nýti „hæfileika“ sína öðrum föngum til góðs.