Mörg hundruð þúsund ósnertir loftsteinar eru dreifðir um ísilagt yfirborð Suðurskautslandsins eða liggja rétt undir ísnum. Flestir þessara loftsteina geta gengið okkur algjörlega úr greipum á næstu áratugum því þeir sökkva dýpra niður í ísinn vegna hækkandi hitastigs sem er afleiðing loftslagsbreytinganna.
Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem hefur verið birt í vísindaritinu Nature Climate Change.
Loftsteinar hafa dunið á Suðurskautslandinu í milljónir ára. Flestir þeirra eru nú þegar sokknir djúpt niður í ísinn og sjást aldrei aftur. En á sumum svæðum heimsálfunnar, sem eru þekkt sem „bláís svæði“ losna loftsteinar úr frosnu fangelsi sínu þegar vindur og sól bræða efsta lag íssins. Sumir þessara loftsteina gætu hafa verið undir ísnum í tugi þúsunda ára.
Þessi svæði eru því meðal bestu svæðanna á jörðinni til að leita að loftsteinum. Það eru um 600 slík svæði á Suðurskautslandinu og þekja þau um 1% af yfirborði heimsálfunnar.
Um 50.000 loftsteinar hafa nú þegar fundist á Suðurskautslandinu eða um 60% af þeim loftsteinum sem fundist hafa hér á jörðinni. Flestir þeirra eru mjög litlir en einnig eru nokkrir stórir þeirra á meðal. Í janúar á síðasta ári fundu vísindamenn 7,7 kílóa loftstein þar en það er einn þyngsti loftsteinninn sem fundist hefur hér á jörðinni.
En óháð stærð, þá geta loftsteinar hjálpað vísindamönnum við að kortleggja leyndarmálin um uppruna og þróun sólkerfisins.