Hin 22 ára gamla Auriane Nathalie Laisne kvaddi ættingja sína og vini í Frakklandi í byrjun apríl og hélt í langþráða ferð til Ítalíu. Tilgangur ferðarinnar var heldur óvenjulegur en Laisne, sem hafði mikinn áhuga á hverskonar yfirnáttúrulegum fyrirbrigðum og ætlaði að leita uppi hús sem sögð voru tengjast reimleika.
Þann 5. apríl síðastliðinn fannst lík Lasnie í yfirgefinni ítalskri kirkju og vakti það talsverða athygli að ekki fannst arða að blóði í líkama hennar.
Umrædd kirkja var staðsett í Aosta-dal í Ítalíu og vitni, sem steig fram við rannsókn málsins, greindi frá því að skömmu fyrir morðið hafi sést til Laisne ásamt ungum manni og hafi þau bæði verið klædd eins og vampírur. Sérstaklega hafi Laisne vakið óhug hjá viðkomandi því hún leit út eins og „lifandi lík“ að sögn vitnisins.
Ljóst var að Laisne hafði mátt þola hrottalegt ofbeldi skömmu fyrir andlátið. Það vakti þó athygli rannsakenda að ekkert benti til þess að hún hafi reynt að verja sig fyrir árásunum. Það benti því allt til þess að Laisne hafði þekkt morðingja sinn vel og mögulega hafi hún látist af fúsum og frjálsum vilja.
Andlátið bar að með þeim hætti að Laisne var stunginn með hníf og síðan hafi það tekið talsverðan tíma fyrir hana að blæða út. Þá fundust skotsár á líkinu en mögulega áttu þau sér stað eftir andlátið.
Ítalska lögreglan tók málið strax föstum tökum og setti umfangsmikla rannsókn í gang. Fimm dögum seinna var grunaður maður í haldi.
Sá heitir Teima Sohaib, 21 árs að aldri, og var handtekinn í Lyon,Frakklandi. Hann reyndist hafa verið kærasti Laisne en hafði mátt sæta nálgunarbanni gegn henni. Það hafði hann brotið og var því eftirlýstur í Frakklandi.
Hann bíður nú réttarhalds í frönsku borginni Grenoble en margt bendir til þess að Laisne hafi samþykkt að láta fórna sér í kirkjunni yfirgefnu. Þó eru ekki öll kurl komin til grafar í málinu og munu réttarhöldin eflaust vekja mikla athygli þegar að þeim kemur.