Þetta var kvendýr sem var ekki með gráan feld. Það var hvítt. „Við héldum að dýrið myndi láta sig hverfa,“ sagði Elisa Ramassa, sem starfar á náttúruverndarsvæðinu, í samtali við The Guardian.
En hvíta úlfynjan fann sér maka og þau eignuðust afkvæmi saman. Úlfar af þessari tegund eru ekki lengur neitt einsdæmi því margir slíkir hafa sést í Evrópu. Þetta eru hvítir úlfar sem eru afkomendur úlfs og hunds, svokallaðir úlfhundar og þeir fjölga sér hratt víða í Evrópu.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að á mörgum svæðum á norðanverðri Ítalíu eru úlfhundar og afkomendur þeirra um 70% af samanlögðum úlfastofnum. Talning leiddi í ljós að úlfhundar hafa sést í 21 Evrópuríki af þeim 28 þar sem leitað var að þeim.
Ástæðan fyrir þessari blöndun tegundanna er að úlfar færa sig sífellt nær borgum og bæjum og þar komast þeir í tæri við gæludýr og götuhunda.
Sumir vísindamenn gleðjast yfir þessari nýju úlfategund því þeir telja hana vera betur í stakk búna til að laga sig að nútímanum þar sem úlfar og fólk búa nálægt hvert öðru. En aðrir óttast að nýja tegundin muni taka algjörlega yfir og ógna tilvist evrópska úlfsins sem hefur um langa hríð verið alfriðaður í ESB.
Í löndum á borð við Austurríki, Sviss, Pólland og Slóveníu hefur verið gripið til harðra aðgerða til að vernda evrópska úlfinn og hafa úlfhundar verið aflífaðir. Francesca Marucco, sem er vísindalegur ráðgjafi hjá Life WolfAlps EU sem fylgist með úlfum í Ölpunum, sagði í samtali við The Guardian: „Við viljum gjarnan skjóta þá alla eins fljótt og auðið er.“