Nýleg uppgötvun, sem var gerð fyrir algjöra tilviljun, varð til þess að flak skipsins fannst á hafsbotni og þar með leystist þessi 120 ára gamla ráðgáta um hvað varð um skipið.
Síðast sást til þess í miklum öldugangi undan bænum Wollongong, sem er rétt sunnan við Sydney, af áhöfn annars skips sem lenti einnig í óveðri þar.
Vikurnar á eftir rak lík áhafnarmeðlima á land á Cronulla Beach auk hluta úr stýri skipsins og öðru braki. En þrátt fyrir mikla umfjöllun fjölmiðla og áhuga almennings á málinu, þá fannst flakið aldrei.
The Guardian segir að þegar Subsea Professional Marien Services, sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að leita að gámum sem hefur tekið fyrir borð, var að leita að gámun undan strönd Sydney árið 2022 hafi það fyrir tilviljun fundið flak skipsins.
Það liggur á hafsbotni um 26 km frá ströndinni, á um 160 metra dýpi. Skipsskrokkurinn situr á sandsléttu en bæði skuturinn og stefnið eru mikið skemmd.
Strax frá upphafi var talið að þetta væri flak SS Nemesis en erfitt reyndist að staðfesta það með fullri vissu vegna þess hversu djúpt er niður á flakið.
Opinber vísindastofnun var fengin til aðstoðar og náði hún myndum af flakinu. Þegar þær voru bornar saman við ljósmyndir og teikningar var hægt að staðfesta að flakið er af SS Nemesis.
Út frá myndunum telja sérfræðingar að skipið hafi ekki ráðið við óveðrið sem það lenti í og þegar stór alda skall á því, hafi það sokkið svo hratt að tími hafi ekki gefist til að sjósetja björgunarbáta.