fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Pressan

Gistipartý tólf ára stúlkna breyttist í martröð – „Gerðu það mamma, geturðu sótt mig“

Pressan
Mánudaginn 4. mars 2024 19:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki að ástæðulausu að sumir foreldrar séu ragir við að leyfa börnunum sínum að gista heima hjá öðrum. Faðir einn í Oregon í Bandaríkjunum er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa byrlað vinkonum dóttur sinnar ólyfjan í gistipartýi í fyrrasumar.

New York Post greinir frá þessu.

Gleðskapurinn átti sér stað þann 26. ágúst í fyrrasumar og er faðirinn, Michael Meyden, sagður hafa blandað ávaxtaþeyting með frosnu mangói fyrir stúlkurnar meðan þær voru að horfa á bíómynd umrætt kvöld.

Það sem stúlkurnar vissu ekki var að Michael hafði sett kæruleysislyf, svokallað benzodiazepin, í blönduna. Lagði hann hart að stúlkunum að klára drykkinn – jafnvel þó ein úr hópnum hafi sagt að skrýtið bragð væri af sínum drykk.

Stúlkurnar sem um ræðir voru fjórar saman og sendi ein þeirra SMS-skilaboð til móður sinnar rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnudagsins 27. ágúst.

„Gerðu það mamma, geturðu sótt mig og sagt að það hafi komið upp neyðartilvik í fjölskyldunni. Mér finnst ég ekki örugg,“ sagði stúlkan sem hafði misst meðvitund en vaknað upp eftir miðnætti.

Ein stúlknanna sofnaði ekki og lýsti hún því hvernig Michael hefði komið í tíma og ótíma inn í herbergi stúlknanna til að athuga hvort þær væru sofandi. Foreldrar stúlkunnar sem sendi SMS komu og sóttu hana um nóttina og höfðu þeir um leið samband við hina foreldrana. Er Michael sagður hafa verið tregur til að leyfa stúlkunum að fara.

Stúlkurnar voru færðar undir læknishendur og kom þá í ljós að þær höfðu neytt róandi lyfja.

Michael hefur nú verið ákærður vegna málsins og er ákæran í mörgum liðum, að því er segir í frétt New York Post. Lögregla hefur ekki gefið neitt upp um ástæður þess að Michael byrlaði stúlkunum.

Lögmaður hans, Mark Cogan, segir við bandaríska fjölmiðla að hann hafi ekki séð gögn málsins. Bætti hann við að skjólstæðingur sinn væri álitinn saklaus þar til annað sannast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 3 dögum

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona getur þú gert örbylgjuofninn skínandi hreinan á nokkrum mínútum

Svona getur þú gert örbylgjuofninn skínandi hreinan á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum