fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Pressan

Tapaði ævisparnaðinum í fáguðu svindli – Svona var hún leidd í gildruna

Pressan
Mánudaginn 23. október 2023 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nikki, 53 ára kona í Ástralíu, leitar nú logandi ljósi að vinnu eftir að hafa verið leidd í svívirðilega gildru á netinu þar sem hún tapaði ævisparnaði sínum.

Nikki sagði upp starfi sínu fyrr á þessu ári vegna alvarlegra veikinda sem eiginmaður hennar glímir við. Staðan hjá þeim hjónum er þannig að hann þarf að vera undir eftirliti allan sólarhringinn en til að hafa tekjur ákvað Nikki að athuga hvort hún fyndi hentuga vinnu á netinu sem hún gæti sinnt í fjarvinnu.

Fékk áhugaverð skilaboð

Hún segir við ástralska fjölmiðla að hún hafi verið búin að leita lengi en ekkert gengið. Dag einn fékk hún þó áhugaverð skilaboð í gegnum LinkedIn-síðuna frá einstaklingi sem sagðist hafa fullkomið starf fyrir hana. Samskiptin færðust yfir á WhatsApp þar sem maðurinn, sem sagðist heita Alvis, útskýrði starfið fyrir hana.

Maðurinn sagðist vera framkvæmdastjóri hjá markaðsfyrirtækinu DUNE7 og í fyrstu virtist ekkert athugavert vera við fyrirtækið. Eftir að hafa slegið nafninu upp á leitarvél Google sá hún að um var að ræða fyrirtæki í New York sem sannarlega er til. Síðar kom á daginn að svikahrappurinn hafði notað merki og nafn fyrirtækisins í svindlinu.

Fékk greitt til að byrja með

Alvis sagði að starfið sem Nikki þyrfti að sinna fæli í sér að bæta ímynd ýmissa ferðaþjónustufyrirtækja á netinu. Hún fengi svo góða þóknun í kjölfarið. Eftir að hafa farið í gegnum stuttan kúrs þar sem Alvis kenndi henni réttu handtökin hófst Nikki handa við að vinna. Eftir að hafa leyst fyrsta verkefnið fékk hún 263 dollara greidda og allt virtist ganga vel.

Í kjölfarið fékk Nikki svo annars konar verkefni þar sem hún þurfti sjálf að leggja pening inn til að klára ákveðin verkefni. Þessu trúði Nikki enda hafði Alvis þegar greitt henni 263 dollara og átti hún von á því að svona virkaði þessi heimur einfaldlega. „Hann sagði að til að græða peninga þyrfti ég að eyða peningum.“

Notaði öll trixin í bókinni

Áður en hún vissi af var hún búin að leggja sem nemur tæpum tveimur milljónum króna á reikning svikahrappsins. Hann bað hana svo að leggja inn milljón í viðbót og þá fengi hún loksins greitt stóra upphæð. Nikki ákvað að ráðfæra sig við systur sína sem sagði augljóst að hún hafði verið svikin.

„Mér leið eins og ég væri svo heimsk,“ segir hún.

Alvis notaði öll trixin í bókinni til að ávinna sér traust Nikki. Hann sagði henni frá hjónabandi sínu og  sendi henni myndir af sér með konunni sinni og tveimur börnum – en vitanlega voru þetta myndir sem svikahrappurinn hafði fundið á netinu.

„Ég hafði ekki hugmynd um að eitthvað svona gæti gerst. Það er fólk þarna úti sem situr á ævisparnaðinum mínum og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég næ honum til baka.“

Nikki segist stíga fram svo aðrir lendi ekki í svipuðum sporum og hún. „Þessir svikahrappar leggjast á fólk í viðkvæmri stöðu – fólk sem bráðvantar peninga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Flugmaður handtekinn skömmu eftir lendingu

Flugmaður handtekinn skömmu eftir lendingu
Pressan
Í gær

Flugfarþegi dæmdur fyrir sjúklegar hótanir í garð áhafnarinnar – Hótaði flugfreyju hópnauðgun og að kveikt yrði í henni

Flugfarþegi dæmdur fyrir sjúklegar hótanir í garð áhafnarinnar – Hótaði flugfreyju hópnauðgun og að kveikt yrði í henni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draugaflugvélin frá Angóla – Ein ótrúlegasta ráðgáta flugsögunnar

Draugaflugvélin frá Angóla – Ein ótrúlegasta ráðgáta flugsögunnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu 60 sm rottu „næstum á stærð við lítinn kött“ á heimilinu – „Vaxandi vandamál“

Fundu 60 sm rottu „næstum á stærð við lítinn kött“ á heimilinu – „Vaxandi vandamál“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Langur nætursvefn og langir blundar auka líkurnar á heilablóðfalli

Langur nætursvefn og langir blundar auka líkurnar á heilablóðfalli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vatn eða kolsýrt vatn? – Þetta er munurinn fyrir líkamann

Vatn eða kolsýrt vatn? – Þetta er munurinn fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þegar dýr sátu á sakamannabekknum – Svín hengd, rottur dæmdar og hanar brenndir á báli

Þegar dýr sátu á sakamannabekknum – Svín hengd, rottur dæmdar og hanar brenndir á báli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Umdeildur þingmaður snýr baki við Repúblikanaflokknum og furðar sig á vegferðinni – „Hvað í fjandanum kom fyrir?“

Umdeildur þingmaður snýr baki við Repúblikanaflokknum og furðar sig á vegferðinni – „Hvað í fjandanum kom fyrir?“