Miðinn var seldur í verslun í smábænum Frazier Park í Kaliforníu þar sem rétt rúmlega 3.000 íbúar búa. Eðli málsins samkvæmt eru íbúar forvitnir um það hvaða íbúi datt í lukkupottinn en enn sem komið er hefur ekkert verið gefið upp um sigurvegarann.
En það er ekki bara miðahafinn heppni sem dettur í lukkupottinn því eigandi verslunarinnar sem seldi miðann fær í sinn hlut eina milljón Bandaríkjadala, tæpar 140 milljónir króna. Reglum samkvæmt fá sölustaðir sem selja vinningsmiðana sinn skerf af kökunni.
Eigandi verslunarinnar, Nidal Khalil, hefur rekið umrædda verslun, Midway Market & Liquor, frá árinu 1994. Hann er flóttamaður frá Sýrlandi og segist hann ætla að nota hluta upphæðarinnar í sjóð fyrir börnin sín svo þau geti lagt stund á háskólanám.
Hann veit ekki hver keypti vinningsmiðann en segir í samtali við New York Post að hann voni að það hafi verið einn af hans fastakúnnum.
„Ég trúði þessu eiginlega ekki til að byrja með. Þetta er líklega það stærsta sem hefur gerst í sögu Frazier Park. Ég vona að sá heppni sé einn af mínum fastakúnnum, það eru nokkrir sem koma á hverjum degi og kaupa miða.“