fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Pressan

Norðmaður þóttist vera ung stúlka – Á 21 árs fangelsi yfir höfði sér

Pressan
Fimmtudaginn 27. apríl 2023 04:11

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mánudaginn hófust réttarhöld í Hörðalandi í Noregi yfir 46 ára karlmanni. Hann er ákærður fyrir grófar nauðganir á norskum og erlendum börnum. Lögreglan óttast að fórnarlömb hans séu mun fleiri en fyrir liggur.

Maðurinn er sagður hafa þóst vera ung stúlka á netinu árum saman og hafi fengið unga pilta til kynferðislegra athafna með sjálfum sér og með öðrum börnum fyrir framan myndavélina.

Hann er einnig ákærður fyrir að hafa notað falda myndavél til að taka myndir af börnum og fullorðnum í sundlaug í Bergen. Þetta stóð yfir í 12 ár.

Maðurinn er sagður hafa birt myndefnið á djúpnetinu.

Norska ríkisútvarpið segir að maðurinn eigi allt að 21 árs fangelsi yfir höfði sér ef hann verður fundinn sekur.

Þegar lögreglan gerði húsleit heima hjá manninum fann hún barnaníðsefni þar sem börn allt niður í tveggja ára aldur voru beitt kynferðislegu ofbeldi.

Maðurinn hefur áður hlotið dóm fyrir vörslu barnakláms en það var 2006. Þá var hann dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi sem þótti mildur dómur en hann var rökstuddur með að maðurinn hefði átt erfiða æsku.

Maðurinn hefur játað að hafa tekið myndir af börnum.

Ákæran er svo umfangsmikil að það tók saksóknara eina klukkustund að lesa hana upp.

Mörg fórnarlamba hans voru yngri en 14 ára þegar brotin áttu sér stað.

Hann er ákærður fyrir brot gegn rúmlega 40 börnum en lögreglan óttast að fórnarlömb hans geti verið allt að 1.000. Hún fann níðingsefni þar sem börn af 18 þjóðernum koma við sögu.

Ástæðan fyrir þessu mati lögreglunnar er að henni hefur ekki tekist að opna dulkóðaðar skrár þrátt fyrir að hafa reynt að opna þær með 500 milljón ólíkum lykilorðum. Maðurinn hefur ekki viljað aðstoða lögregluna við að opna þessar skrár.

Fyrir dómi kom fram að við eitt myndbandanna, sem maðurinn birti á djúpnetinu, hefðu 94.000 athugasemdir verið skráðar. Annað myndband, sem hann birti, fékk 600.000 áhorf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“

Áttræð kona lét lífið út af bilun í rafmagnsrúmi – „Hún þjáðist allan tímann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna

Dularfullir drónar herja á New Jersey – Enginn veit hvaðan þeir koma eða hvers vegna þeir eru þarna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu