Nottingham Post skýrir frá þessu.
„Ég opnaði dósina og sá lítinn hlut, magasekk eða innyfli og síðan sneri ég honum aðeins og ýtti í hann með gafflinum og sá hann horfa á mig. Hann var með stuttan hala og mjög ljótur. Ég missti gaffalinn, hoppaði aftur á bak og öskraði aðeins og kallaði á ömmu að koma og sjá þetta,“ sagði Butler.
Ekki er vitað með vissu hvaða dýr þetta var en prófessor í sníkjudýrafræði við University of Nottingham sagði að hugsanlega hafi þetta verið hlutur af ungum krabba, fætur hans hafi verið skornir af í vinnsluferlinu.
En lesendur geta kannski dæmt um það sjálfir út frá myndunum.