fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Tvífara morðið – Áhrifavaldur grunaður um að hafa gengið alltof langt til að losna frá fjölskylduerjum

Pressan
Föstudaginn 24. febrúar 2023 20:30

Sharaban t.v. og Khadidja t.h.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýskur áhrifavaldur hefur verið sakaður um að myrða konu sem var sláandi lík henni. Til hvers? – gætu margir spurt sig. Nú til að sviðsetja sitt eigið andlát.

Áhrifavaldurinn, Sharaban K, var komin með nóg af fjölskylduerjum sem hún hafði staðið í og ákvað að fara í felur. Til að tryggja að hennar yrði ekki leitað ákvað hún að sviðsetja sitt eigið andlát og voru þá góð ráð dýr.

Hún leitaði því logandi ljósi að konu sem væri nægilega lík henni til að áform hennar gætu gengið upp. Talið er að hún hafi nálgast allt að fimm konur en að lokum komst hún að þeirri niðurstöðu að Khadidja O. væri rétta konan.

Hún bjó til gerviaðgang á samfélagsmiðlum til að nálgast Khadidju. Þóttist hún vera rappari sem er þekktur sem Lune og sagðist endilega vilja fá Khadidju til að leika í nýju tónlistarmyndbandi.

Khadidja var þó ekki sannfærð og sendi raddskilaboð til alvöru rapparans og sagði „Ég vona að þú sjáir þetta og svarir mér því ég er mjög efins. Það væri mjög gott ef þú gætir sagt mér hvort þetta væri raunverulegt eða ekki.“

Rapparinn Lune svaraði – „Þetta er gervi systir, ekki svara.“

Þá reyndi Sharaban aftur. Að þessu sinni nálgaðist hún Khadidju og þóttist ætla að gefa henni förðunarvörum. Hún fór svo með kærastanum sínum og hitti Khadidju í skógi þar sem hún stakk hana 50 sinnum, meðal annars ítrekað í andlitið, og kom henni svo fyrir í bílnum sínum. Átti þetta að sannfæra yfirvöld um að það væri Sharaban sem væri þarna látin.

Það voru svo foreldrar Sharaban sem fundu líkið og trúðu þau fyrst að þarna væri um dóttur þeirra að ræða. Svo virtist sem að blekkingarleikurinn hefði gengið upp. Foreldrarnir báru kennsl á líkið og sögðu að þetta væri vissulega Sharaban.

Hins vegar var, sem venja er, framkvæmd krufning fóru yfirvöld þó að efast. Lögregla skoðað þá samfélagsmiðla Sharaban og sá að hún hafði haft samband við þó nokkrar konur sem voru sláandi líkar henni. Því fór lögreglu fljótt að gruna að hún hefði myrt eina af þessum konum til að sviðsetja sitt eigið andlát.

Sharaban var í kjölfarið leituð uppi og handtekin og var nýlega ákærð fyrir morð og á yfir höfði sér lífstíðar fangelsi. Kærasti hennar Sheqir hefur einnig verið handtekinn grunaður um að vera samverkamaður hennar.

Eftir að fregnir bárust af morðinu gaf rapparinn Lune út skilaboð til aðdáenda sinna og sagði: „Einhver reyndi aftur að hafa samband við Khadidju til að lokka hana á fund sinn og að þessu sinni gekk það upp því hún trúði á það góða í fólki.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi