fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Vaknaði eftir að hafa verið dáin í 27 mínútur – Flýtti sér að skrifa skilaboð til fjölskyldu sinnar

Pressan
Mánudaginn 13. febrúar 2023 20:30

Tina og skilaboðin sem hún skrifaði. Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað gerist þegar maður deyr? Þetta er örugglega eitthvað sem margir velta stundum fyrir sér og líklega hefur þessi spurning brunnið á fólki síðan á árdögum þess. Líklega veit enginn svarið, eða hvað? Það er til fólk sem segist hafa betri skilning á því sem bíður okkar eftir dauðann en aðrir. Ástæðan er að þetta fólk hefur sjálft upplifað dauðann.

Þú hefur eflaust heyrt um fólk sem dó á meðan það var á skurðarborðinu en vaknaði síðan aftur til lífsins og lýsti undarlegri upplifun sinni á meðan það var dáið.

Tina Hines er ein af þessum manneskjum. Hún fékk hjartaáfall í febrúar 2018. Eiginmaður hennar, Brian, reyndi að endurlífga hana en án árangurs.

LadBible segir að á leiðinni á sjúkrahús hafi sjúkraflutningsmönnum tekist að endurlífga hana sex sinnum en í heildina hafi hún verið dáin í 27 mínútur.

Þegar búið var að barkaþræða hana á sjúkrahúsinu komst hún til meðvitundar. Það fyrsta sem hún gerði var að biðja um blað og pennar til að hún gæti skrifað skilaboð til fjölskyldu sinnar.

Hún skrifaði illlæsilegan texta „it‘s real“ (þetta er raunverulegt). Þegar hún var spurð hvað væri raunverulegt, kinkaði hún kolli upp á við. „Þetta var svo raunverulegt, litirnir voru svo lifandi,“ sagði hún í samtali við Azfamily.com.

Illlæsileg skilaboðin. Mynd:Facebook

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún sagðist einnig hafa séð veru sem hún telur vera Jesú.

Upplifanir af þessu tagi eru í sjálfu sér ekki sjaldgæfar. Rannsóknir hafa leitt í ljós að flestir muna ekkert eftir þeim tíma sem þeir voru dánir en 10-20% muna eitthvað eftir þeim tíma.

Rannsókn, sem vísindamenn við University of Michigan, gerðu á rottum 2013 sýndi að virkni heilans var meiri rétt fyrir dauðann en venjulega þegar rotturnar voru vakandi. Dr Jimo Borjigin, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að margir telji að heilinn sé óvirkur eða vanvirkur eftir að fólk er klínískt látið en það sé svo sannarlega ekki þannig. „Ef eitthvað, þá er hann miklu virkari á meðan dánarferlið stendur yfir en þegar við verum vakandi,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

25 mafíósar handteknir – Þar á meðal nunna

25 mafíósar handteknir – Þar á meðal nunna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn hafa uppgötvað raunverulegu ástæðuna fyrir að konur gera sér upp fullnægingu

Vísindamenn hafa uppgötvað raunverulegu ástæðuna fyrir að konur gera sér upp fullnægingu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“

Katie Holmes svarar orðrómunum – „Algjör vitleysa“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi

Lokkuð í frí af „kærastanum“ – Var upphafið að hryllingi