Ættingjar hennar báru kennsl á líkið og staðfestu að þetta væri lík hennar. En þegar krufning fór fram næsta dag vöknuðu spurningar um af hvaða konu líkið væri. Að lokum kom í ljós að líkið var af Khadidja O., sem var af alsírskum ættum. Hún var 23 ára og búsett í Heilbronn og hafði meðal annars lifibrauð sitt af að blogga um húð og fegurð.
Báðar konurnar voru með sítt svart hár, svipaðar í útliti og með mikinn andlitsfarða. Þær voru því nauðalíkar að sögn lögreglunnar.
The Guardian segir að lögreglan hafi nefnt málið „tvífaramorðið“. Sharaban K. hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 19. ágúst ásamt 23 ára manni frá Kósovo. Hann heitir Sheqir K. Lögreglan skýrði ekki frá ástæðu morðsins fyrr en nú í vikunni.
Veronika Grieser, saksóknari í Ingolstadt, sagði á mánudaginn að rannsókn lögreglunnar hafi leitt hana að þeirri niðurstöðu að hin handteknu hafi viljað fara í felur vegna fjölskyldudeilna. Hafi Sharaban K. viljað sviðsetja eigin dauða til að geta farið huldu höfði.
Lögreglan segir að Sharaban K. hafi sett sig í samband við nokkrar konur, sem líkjast henni, vikuna áður en Khadidja O var myrt. Hafi Sharaban notast við ýmsa aðganga á samfélagsmiðlum og reynt að fá konurnar til að hitta sig en þær hafi ekki fallist á það.
En Khadidja O. féllst á að hitta hana. Sheqir K. og Sharaban K. eru sögð hafa sótt hana heim til hennar. Þau óku síðan með hana út í skóglendi á milli Ingolstadt og Heilbronn þar sem þau stungu hana til bana. Hún var stungin rúmlega 50 sinnum og var andlit hennar mjög illa leikið eftir ofbeldið.
Skötuhjúin eiga ævilangt fangelsi yfir höfði sér ef þau verða sakfelld.