BBC skýrir frá þessu. Giorgia var einhverf og fannst gott að spreyja svitalyktareyði á rúmið sitt því það fékk hana til að slaka á.
En 11. maí síðastliðinn endaði þetta illa þegar hún andaði of miklum gufum frá svitalyktareyðinum að sér og fékk hjartastopp og lést.
Á dánarvottorði hennar kemur fram að dánarorsökin sé óljós en geti tengst því að hún hafi andað að sér litlum ögnum í loftinu, til dæmis ögnum frá úðabrúsa.
Eftir lát hennar komust foreldrar hennar að því að fleiri dæmi eru um óhöpp þar sem ungt fólk hefur látist eftir að hafa andað hættulegum gufum úr svitalyktareyðisbrúsum að sér.
Skiptir þá engu að breskir framleiðendur segja að „mjög skýrar aðvaranir“ séu á brúsunum því þar standi að halda eigi þeim frá börnum.
En foreldrar Giorgia telja þetta ekki nóg og benda á að textinn sé með mjög smáu letri. „Fólk veit ekki hversu hættulegt innihaldið getur verið. Enginn á að þurfa að ganga í gegnum það sem við höfum þurft að ganga í gegnum,“ sagði Paul Green, faðir Giorgia.
Frá 2001 til 2020 voru 11 andlát í Bretlandi tengd við svitalyktareyða að sögn hagstofu landsins.