„Það er með sorg í hjarta sem ég neyðist til að deila þeirri hræðilegu frétt að fallega dóttir mín, Lisa Marie, hefur yfirgefið okkur,“ skrifaði Priscilla Presley í tilkynningu sem hún sendi People í nótt.
Lisa Marie var flutt með sjúkrabifreið frá heimili sínu í Calabasas í Kaliforníu í gær eftir að hún hafði líklega fengið hjartastopp.
Síðast sást hún opinberlega á þriðjudaginn á Golden Globe verðlaunahátíðinni. Þar var hún með móður sinni og leikaranum Austin Butler, sem leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni „Elvis“. Hann fékk Golden Globe verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni.
Lisa Marie fæddist í Memphis í Tennessee þann 1. febrúar 1968, nákvæmlega níu mánuðum eftir brúðakup foreldra sinna. Faðir hennar var þá á hátindi ferilsins en hann lést í ágúst 1977 á heimili sínu í Graceland í Memphis. Lisa Marie var heima hjá honum þegar það gerðist en þegar þarna var komið við sögu voru fjögur ár liðin frá skilnaði foreldra hennar.
Líf Lisa Marie var stormasamt. Hún reyndi að feta í fótspor föður síns í tónlistinni og náð smávegis árangri en ekki í líkingu við það sem faðir hennar hafði afrekað. Hún gaf út þrjár plötur.
Hún átti fjögur hjónabönd að baki. Þar á meðal þriggja mánaða hjónaband með leikaranum Nicolas Cage og 21 mánaða hjónaband með poppstjörnunni Michael Jackson. Áður en hún giftist Jackson var hún gift Danny Keough og eignuðust þau tvö börn.
Hún giftist Michael Lockwood, sem lék á gítar í hljómsveit hennar, 2006. Þau eignuðust tvíbura 2008 en það slitnaði upp úr hjónabandinu og 2016 var gengið frá skilnaði þeirra.