fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Voru látnar afklæðast í atvinnuviðtalinu

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. janúar 2023 22:00

Vél frá Kuwait Airlines. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmargar konur voru beðnar um að afklæðast að mestu þegar þær voru í atvinnuviðtali hjá Kuwait Airways.

Viðtölin fóru fram í Madrid á Spáni og sá ráðningarfyrirtækið Meccti um þau. Bild skýrir frá þessu og vitnar í spænska dagblaðið El Diario.

Fram kemur að konurnar hafi verið boðaðar í atvinnuviðtal á Meliá Barajas, sem er fjögurra stjörnu hótel.

Einni var hafnað í fyrstu umferð af því að hún þótti of gömul en hún er 37 ára. Annarri var hafnað af því að hún var með lítið ör við aðra augabrúnina. Enn öðrum var hafnað af því að þjóðerni þeirra þótti ekki rétt.

Þegar kom að annarri umferð voru konurnar kallaðar hver á fætur annarri inn í hótelherbergi. „Fyrsta konan kom grátandi út og sagði okkur að maður væri beðinn um að fara úr nánast öllum fötum. Maður mátti bara vera í nærfötunum. Þetta var fyrsta atvinnuviðtalið hennar, nokkru sinni. Hinar konurnar sögðu sömu sögu,“ sagði Bianca, 25 ára, í samtali við El Diario.

Sjálf var hún beðin um að lyfta kjólfaldi sínum aðeins. „Ég lyfti honum upp, þar til hann var rétt undir hnjánum. Ein af konunum frá ráðningarskrifstofunni lyfti honum alveg upp að nærbuxunum,“ sagði hún og bætti við að hún hafi að lokum staðið á nærbuxunum og brjóstahaldaranum einum saman. Henni var sagt að þetta væri gert til að ganga úr skugga um að hún væri ekki með ör, fæðingarbletti eða húðflúr.

Önnur kona sagði að henni hafi verið hafnað af því að hún er dökk á hörund. „Mér fannst ég niðurlægð og mismunað. Ég var bara vara og þetta hefur haft mikil áhrif á mig,“ sagði hún.

Sögur kvennanna voru bornar undir Kuwait Airlines sem sagði að fyrirtækið hafi notað sama ráðningarfyrirtækið í fimm ár en aldrei áður hafi svo alvarlegar ásakanir komið fram á hendur fyrirtækinu. Í svari fyrirtækisins segir einnig að aðferðir af þessu tagi verði ekki liðnar í framtíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi

Vinna í kappi við tímann við að bjarga þúsundum úr sýrlensku neðanjarðarfangelsi