Fiskur sem veiddur var í veiðikeppni í Ohio, Bandaríkjunum, hefur vakið mikla athygli en mennirnir sem veiddu hann eru sakaðir um að hafa svindlað í veiðikeppninni.
En hvernig er hægt að svindla í veiðikeppni? Það er að minnsta kosti sjaldnast rætt um kynlífstæki í tengslum við svindl í slíkum keppnum eins og hefur tíðkast í skákinni undanfarna daga. En þrátt fyrir að engin kynlífstæki hafi komið við sögu þá voru veiðimennirnir samt staðnir að því að troða hlutum í fiskinn sem alla jafna ættu ekki að vera þar. Þeir fylltu hann nefnilega af þyngdum og öðrum minni fiskum svo hann yrði vigtaður þyngri en hann raunverulega var.
Þegar upp komst um svindlið urðu veiðimennirnir í keppninni afar reiðir og öskruðu ýmis fúkyrði. „Drulliði ykkur í burtu, fávitarnir ykkar!“ heyrist til dæmis einn maður öskra í myndbandi sem sýnir þegar upp komst um svindlið.
Jason Fischer, stjórnandi keppninnar, segir í samtali við Washington Post að hann hafi grunað veiðimennina um græsku um leið og fiskurinn var vigtaður. Fischer er að eigin sögn með gott auga fyrir þyngdum fiska og hafði slumpað á að fiskurinn sem um ræðir væri um 9 kíló. Honum fannst því grunsamlegt þegar vigtin sagði að fiskurinn væri rúm 15 kíló.
„Ég vissi bara að þetta væri ekki rétt,“ segir Fischer. Hann tók því fiskinn upp og fann að það var eitthvað hart í honum, það sama var svo að segja um hina fiskana sem veiðimennirnir höfðu veitt. Alls fundust um 10 lóð á stærð við egg í fiskum veiðimannanna. Ákveðið var að dæma veiðimennina úr leik og banna þá ævilangt frá keppninni.