Þegar karlmaður nokkur mætti á hótel í borginni Phoenix í Arizona, Bandaríkjunum, til að hitta konu sem hann kynntist í gegnum Tinder bjóst hann við því að hitta konu að nafni Sonya. Það tók þó engin Sonya á móti honum heldur stóðu þau Jose Sandoval Jaquez, 32 ára karlmaður, og kærastan hans, hin 33 ára gamla Crystal Hulsey í hótelherberginu. Jaquez og Hulsey tóku á móti manninum með því að miða byssu á hann og segja honum að tæma vasana.
Karlmaðurinn gerði eins og parið sagði honum að gera, rétti þeim símann sinn, skilríkin sín, aðgangana að samfélagsmiðlunum sínum, bankaupplýsingarnar sínar og PIN-númerið sitt. Jaquez og Hulsey skipuðu manninum þá að keyra sig í næsta banka þar sem þau tóku út 900 dollara, um 130 þúsund í íslenskum krónum, af reikningnum hans. Eftir það ákváðu þau að taka bíl mannsins einnig og keyrðu á brott.
Á næstu dögum tók parið út alls 3.000 dollara af reikningi mannsins. Lögreglan átti auðvelt með að tengja þau Jaquez og Hulsey við ránið enda notuðu þau sín eigin nöfn til að bóka hótelherbergið. Þá höfðu þau einnig lagt pening mannsins inn á sína eigin aðganga á greiðsluforritunum Zelle og Cash App.
Lögreglan sá sér leik á borði er hún fann auglýsingu fyrir fylgdarkonu á netinu en auglýsingin innihélt símanúmer Hulsey. Lögreglan bókaði fylgdarþjónustuna og ætlaði sér að handtaka parið er þau myndu mæta. Það mistókst þó því þegar lögreglan ætlaði að láta til skarar skríða náði parið að bruna í burtu.
Lögreglan elti þá Jaquez og Hulsey sem keyrðu yfir hámarkshraða og á vitlausum akgreinum í gegnum nokkrar borgir. Að lokum klesstu þau á annað ökutæki og náði lögreglan þá loksins að handtaka þau.